Handtekinn af ICE eftir milljón dala lottóvinning
Ariel Velasquez-Morales, karlmaður frá El Salvador, var handtekinn í Boston af Útlendinga- og tollaeftirliti Bandaríkjanna (ICE) aðeins örfáum dögum eftir að hann vann 1 milljón bandaríkjadala í lottói Massachusetts-ríkis.
Vinningurinn jafngildir því sem nemur um 125 milljónum íslenskra króna miðað við núverandi gengi.
Það var mikil ávöxtun á þeim 10 dölum (1250 kr.) sem skafmiðinn sem Velasquez-Morales keypti 18. nóvember síðastliðinn kostaði.
Vísa á vinningshafanum úr landi en hann er í varðhaldi ICE um þessar mundir. The New York Times greinir frá.
ICE segir hann hafa dvalið ólöglega í landinu síðan 2013 þegar hann hafi komið í landið á tímum Obama-stjórnarinnar. Landamæraverðir í Texas hafi árið 2014 gert honum að mæta fyrir dómara í innflytjendamálum til að kveða á um dvalarleyfi hans. Salvadorinn hafi ekki mætt.
Handtekinn eftir myndbirtingu af ávísuninni
Handtakan átti sér stað eftir að Velasquez-Morales stillti sér upp á mynd með risastórri ávísun þar sem vinningsupphæðin kom fram.
Nokkrum dögum eftir handtökuna setti ICE sömu mynd inn á sína samfélagsmiðla, þá sem birtist af vinningshafanum með ávísunina, og greindi frá því að hann hefði verið handtekinn.
„Það lítur út fyrir að lukkan hafi runnið sitt skeið,“ sagði Micah Bock, aðstoðardeildarstjóri samskiptadeildar ICE um málið.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

