Segja Þorgerði fara með dylgjur um meint geimskot

Rússneska sendiráðið gagnrýnir málflutning Þorgerðar Katrínar. Það er ekki í fyrsta sinn. mbl.is/Eggert

Rússneska sendiráðið í Reykjavík gagnrýndi í gærkvöldi málflutning Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um meinta fyrirhugaða sendingu Rússa á kjarnorkuvopnum út í geim á sporbraut jarðar.

Rússar vitna til viðtals Þorgerðar við Vísi um málið. Um er að ræða upplýsingar frá vestrænum leyniþjónustum um fyrirætlanir Rússa þess efnis að þjóðin sendi geimskipið Sputnik S á sporbraut jarðarinnar útbúið kjarnorkuvopnum.

Þorgerður sagði málið mjög alvarlegt. Það yrði að öllum líkindum rætt á fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsins í Brussel í næstu viku. 

Sendiráðið segist hafa rætt um málið við íslenska utanríkisráðuneytið 15. október síðastliðinn en furðar sig á því að Þorgerður Katrín minnist á það í viðtalinu.

Þorgerður Katrín ræddi við mbl.is í gær og gagnrýndi þar árásir Rússa í Evrópu. Samtalið má sjá í greininni hér að neðan.

Þorgerður Katrín ræddi við blaðamann mbl.is í gær um borð í varðskipinu Þór þar sem hún gagnrýndi aðgerðir Rússa. mbl.is/Eyþór

Segja ekkert hæft í málinu

„Það kemur á óvart að sjá ráðherrann, sem fylgir fordæmi kollega sinna í Evrópu og byggir grunsemdir sínar á vafasömum ályktunum sem ekki eru rökstuddar með neinum alvöru staðreyndum og er dreift af innlendum blaðamönnum með tilvísan í upplýsingar frá leyniþjónustum vestrænna ríkja í þýskum miðlum,“ segir sendiráðið.

Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, er meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið og lýst yfir áhyggjum af meintum fyrirætlunum Rússa um geimskotið. Þýskir fjölmiðlar hafa greint frá því að það kunni að eiga sér stað á næstu 60 dögum.

„Slíkar aðdróttanir eru ekkert annað en hluti af andrússneskri áróðursherferð gegn hvers tilgangur er að grafa undan trúverðugleika þegar kemur að starfi Rússlands í geimnum.“ 

Sendiráðið vill minna á að Rússland tali fyrir friðsamlegri starfsemi í geimnum samkvæmt alþjóðalögum og sé hluti af Geimsáttmálanum frá 1967. Rússar benda jafnframt á að þeir séu höfundar fjölda ályktana Sameinuðu þjóðanna sem kveði á um að vopnum verði ekki komið fyrir í geimnum og gagnsæi milli þjóða í þessum efnum.

„Ofangreindum sjónarmiðum Rússlands er varða andstöðu við sendingu vopna í geiminn, og þar á meðal kjarnorkuvopna, var komið á framfæri við utanríkisráðuneyti Íslands þann 15. október 2026 munnlega í tengslum við ummæli ritara bandaríska flughersins í september 2026 er vörðuðu „sporbaugsvopn“.“

Rússar furða sig á því að ekki hafi verið minnst á neitt þessu tengt. 

Vladimír Pútín forseti Rússlands, Xi Jinping, forseti Kína og Donald Trump Bandaríkjaforseti hittust í Shenzhen í Kína fyrir viku síðan. AFP/Win McNamee

Pútín vilji draga úr kjarnorkuvopnum

Rússar segja jafnframt að vonbrigði Þorgerðar með viljaleysi æðstu ríkja heimsins til að draga úr kjarnorkumætti þeirra séu umhugsunarverð.

Þar er vitnað til viðtalsins á Vísi þar sem segir að Þorgerður hefði viljað sjá þessi mál rædd ítarlega á fundi Donalds Trump, Vladimírs Pútín og Xi Jinping í Kína. 

Þeir benda í því samhengi á nýlegan leiðtogafund Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, Xi Jinping, forseta Kína, og Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

Þar hafi samhugur leiðtoga heimsveldanna þriggja verið um að draga þyrfti úr kjarnorkuvopnum.

„Kjarnorkustríð vinnst ekki. Slíkt stríð má aldrei vera háð,“ segir sendiráðið og vísar í ályktun fundarins milli þjóðarleiðtoganna á vefsíðu Hvíta hússins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab