Við erum aldrei litlir í okkur
„Ég hef allavega aldrei farið í leik og búist við því að tapa,“ sagði Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfubolta, í samtali við mbl.is eftir 113:101-sigur Íslands á Bosníu í undankeppni HM í Laugardalshöll í kvöld.
Elvar skoraði 30 stig og gaf tíu stoðsendingar í sigrinum. Næst mætir Ísland Tyrklandi á útivelli á sunnudag en þrátt fyrir stórt tap gegn Tyrkjum á heimavelli fyrr í keppninni ætlar hann sér sigur.
„Við erum aldrei litlir í okkur og þó svo að það verði erfitt þá mætum við alltaf til að keppa og reyna að vinna. Svo gerum við okkar besta og lifum með frammistöðunni.“
Elvar sagði frábæra skotnýtingu hafa lagt grunninn að sigrinum á Bosníu. Þegar íslenska liðinu tókst að ná stoppum í vörninni hefði munurinn fljótt aukist. Hann missti ekki trúna þótt Bosníumenn kæmust yfir í öðrum leikhluta.
„Við vorum í það góðu flæði og þeir voru að setja mikið af skotum. Við þurftum bara að herða aðeins varnarleikinn og þá vissum við að við myndum ná að sigla fram úr þeim. Það var það sem gerðist. Við misstum aldrei trúna og vorum yfirvegaðir.“
Hann var ánægður með liðið í heild en sagði varnarleikinn þurfa að batna fyrir Tyrklandsförina.
„Við getum ekki alltaf falið okkur á bak við að vera með svona góðan sóknarleik. Það gerist ekki alltaf þannig að við þurfum að líta aðeins á það.“
Spurður hvað þyrfti til að vinna Tyrki var Elvar afdráttarlaus.
„Að allt gangi upp. Að við eigum svona skotleik og náum að herða vörnina enn betur. Það þarf einhvern veginn allt að ganga upp til að eiga möguleika.“
Ísland á enn möguleika á að komast á HM en Elvar ætlar ekki að horfa lengra en að næsta verkefni.
„Ef það er tölfræðilegur möguleiki, þá er möguleikinn. Við tökum bara einn leik í einu. Þetta er fáránlega erfitt verkefni sem við erum með fram undan. Við byrjum á Tyrklandi og sjáum hvort það sé einhver möguleiki eftir það.“
Elvar fékk einnig spurningu um olnboganotkun Bosníumanna og sagði íslenska liðið hafa verið undirbúið fyrir líkamlegan leik þeirra.
„Þetta eru stórir og sterkir strákar og stundum erum við litlu strákarnir að þvælast fyrir þeim í olnbogahæð. Það kemur fyrir að þú lendir í einum, tveimur olnbogum. Þetta er bara stíllinn þeirra.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗