Vill leyfa bjórsölu í Bláfjöllum

Magnús vonast til þess að bjórinn byrji að flæða sem fyrst. Samsett mynd/Aðsend/Eggert/Unsplash

Magnús Benediktsson, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness og fulltrúi þess í Samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins (SSH), vill að hægt verði að kaupa bjór í Bláfjöllum, jafnvel strax skíðaveturinn 2027 til 2028.

Magnús óskaði eftir því að áfengissala í Bláfjöllum yrði rædd á 444. fundi nefndarinnar, sem haldinn var 18. nóvember. Þar lagði hann fram bókun þess efnis að það væri „skref í rétta átt“ að nefndin héldi áfram að ræða og skoða möguleikann á bjórsölu á svæðinu.

Yrði hluti af útboði veitingarekstrar

„Mér fannst flestir hafa tekið mjög vel í þessa tillögu,“ segir Magnús í samtali við mbl.is. Nú þurfi að skoða hver næstu skref verða, fýsileika málsins og hvort þetta sé yfirhöfuð leyfilegt.

Þorvaldi Daníelssyni formanni nefndarinnar og Atla Steini Árnasyni skrifstofustjóra Útilífsborgar hefur verið falið að afla upplýsinga um málið.

Að sögn Magnúsar er hugmyndin sú að bjórsala verði hluti af útboðslýsingu fyrir veitingareksturinn í Bláfjöllum. Rekstraraðilinn sem fengi samninginn myndi þá sjá um söluna.

Magnús segist þó ekki mótfallinn því að skíðasvæðin seldu bjórinn sjálf. Hann efast hins vegar um að aðrir nefndarmenn væru til í það.

„Mér finnst þetta í raun og veru bara forræðishyggja, að vera með svona stans um að mega ekki vera með bjórsölu í Bláfjöllum,“ segir hann og bendir á að bjór sé seldur í Hlíðarfjalli á Akureyri. Þar hafi það gengið mjög vel.

Gagnrýnisraddir fortíðarinnar

Spurður um gagnrýni á hugmyndina segist Magnús hafa heyrt einhverjar gagnrýnisraddir.

„En mér finnst það vera svolítið bara raddir fortíðarinnar,“ segir hann.

Hann telur ekki ástæðu til að óttast að áfengi og skíði fari illa saman, miðað við reynsluna úr Hlíðarfjalli. Hins vegar þurfi að fá lögregluna með í málið svo fólk keyri ekki heim undir áhrifum.

Að öðru leyti verði fólk sjálft að meta hvað sé of mikið þegar það er á skíðum.

Magnús segist ætla að halda málinu áfram. „Vonandi verður hægt að kaupa sér bjór á krana í Bláfjöllum bara sem fyrst.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab