Lokaði fyrir færslur eftir 140 milljóna millifærslu

Íslandsbanki hafði 6. október 2022 upplýst félagið um að þrátt fyrir að lokað hefði verið fyrir inn- og útborganir á reikningum þess hefði ekki verið lagt hald á fjármunina. Félaginu væri frjálst að færa þá til annarrar fjármálastofnunar. Málið á rætur að rekja til þess að greiðsla að fjárhæð 997.500 Bandaríkjadalir, sem þá jafngilti tæpum 140 milljónum króna, barst inn á gjaldeyrisreikning félagsins í september árið 2022. Greiðslan var að mati bankans í ósamræmi við áður gefnar upplýsingar um mánaðarlega veltu félagsins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab