Segir spákortin óvirk ef samband við útlönd rofnar
Jón Trausti segir að nokkrum tilvikum hafi honum jafnvel tekist að uppfæra spákort sín hraðar en Veðurstofunni. Samsett mynd/Skjáskot/Aðsend
Óánægja með nýjan vef Veðurstofu Íslands varð til þess að Jón Trausti Arason tölvunarfræðingur og eiginkona hans, Helga Kristín Gunnarsdóttir, réðust í gerð eigin veðurvefs, Vedurspain.is. Verkefnið var upphaflega hugsað fyrir fjölskylduna en hefur hlotið afar góðar viðtökur, ekki síst meðal bænda.
Á vefnum er meðal annars hægt að sjá úrkomu, vind, hitastig og færð á vegum á einu og sama kortinu, auk þess sem notendur geta vistað sérsniðna sýn á þau landsvæði sem þeir hafa áhuga á.
Jón Trausti, sem hefur tæplega 30 ára reynslu af hugbúnaðarþróun, gerir jafnframt athugasemdir við tæknilega útfærslu nýs vefs Veðurstofunnar.
Hann gagnrýnir að stuðst sé við erlenda þjónustu við birtingu spákorta og segir aðgengi að gögnum ekki vera með þeim hætti sem hann hefði vænst miðað við yfirlýsingar stofnunarinnar. Það geti skapað vandræði ef samband rofnar við útlönd.
Elskuðu gömlu veðurtáknin
„Þetta var bara lítið verkefni fyrir fjölskylduna,“ segir Jón Trausti í samtali við mbl.is og nefnir að á eldri vef Veðurstofunnar hafi verið auðvelt að átta sig á því í fljótu bragði hvernig veðrið myndi þróast á tilteknum landsvæðum.
Nú þurfi notendur að þysja inn á kort og fara á milli ólíkra korta til að nálgast upplýsingar.
Þá hafi ný veðurtákn ekki heldur fallið í kramið.
„Maður elskaði gömlu táknin svo mikið, maður þekkti þau svo vel,“ segir hann og veltir fyrir sér hvers vegna ekki hafi einfaldlega verið byggt ofan á það sem fyrir var.
Hann hefði heldur kosið að sjá eldri vefinn þróaðan áfram í smærri skrefum og viðbrögð notenda könnuð jafnóðum.
Helgi Borg, sem hafði umsjón með eldri vef Veðurstofunnar, útbjó einmitt tillögur í þeim anda árið 2012, þegar ljóst var að vefurinn var orðinn úreltur. Þeim var hins vegar hafnað.
Bændur sérstaklega ánægðir
Jón Trausti segir viðbrögðin við nýja veðurvefnum hafa verið vonum framar. Meðal þeirra sem lýst hafi yfir ánægju séu bændur á Norðurlandi.
„Þeir vildu mjög mikið fá gamla góða vindakortið með þessum vindörvum,“ segir hann.
„Ég henti því upp fyrir þau og þau eru mjög ánægð og segjast ætla að nota mína síðu núna bara héðan í frá. Það er svo mikilvægt fyrir þá að vita hvernig veðurspáin er, hvenær á að taka skepnur inn og fleira,“ segir Jón Trausti.
Á vefnum er einnig hægt að skoða veðurspá fyrir Atlantshafið, en Jón Trausti segist hafa nýtt sér slíka spá mikið á eldri vef Veðurstofunnar og ekki fundið hana á þeim nýja.
„Það er líka ótrúlega gaman að sjá hvernig fólk hefur brugðist við og við erum komin með allar þessar lausnir í loftið. Síðan okkar er bara ein af mörgum sem hefur poppað upp síðustu daga,“ segir hann jafnframt og vísar til þess að fleiri veðurvefir hafi litið dagsins ljós eftir að nýr vefur Veðurstofunnar fór í loftið í síðustu viku.
Vefur Veðurstofunnar hefur verið töluvert gagnrýndur og þykir hann ekki eins aðgengilegur og sá gamli. Þá hefur mikill kostnaður við hann vakið athygli.
Í því samhengi má rifja upp að í svari Veðurstofunnar við fyrirspurn Morgunblaðsins, í febrúar árið 2024, sagði að hönnun og smíði á nýjum vef kæmi til með að kosta 190 milljónir króna þegar upp væri staðið.
Við það myndu bætast 20 til 30 milljónir króna á ári í rekstur og þróun kerfa tengdra vefnum.
Vefurinn kostaði hins vegar þegar upp var staðið um 460 milljónir króna en Helgi, sem hafði umsjón með eldri vefnum, telur að bæta megi allt að 200 milljónum króna við þá upphæð, vegna vinnu sem fór fram áður en verkefnið fór í útboð.
Notandinn fær valdið
Það sem Jón Trausti telur einkum aðgreina vef þeirra hjóna frá öðrum veðurvefum er möguleikinn á að samkeyra ólíkar upplýsingar á einu korti.
„Þú getur valið hvað þú vilt sjá á þessu sama korti í stað þess að vera að fara á milli korta.“
Notendur geta þannig til að mynda skoðað vind, úrkomu og færð á vegum samtímis áður en lagt er af stað í ferðalag.
„Þetta gefur notandanum bara það vald sem hann vill fá.“
Þá er hægt að vista ákveðna sýn á kortið þannig að ekki þurfi að stilla það upp á nýtt í hvert sinn sem farið er inn á vefinn.
Gat ekki sótt gögnin frá Veðurstofunni
Jón Trausti segist upphaflega hafa ætlað sér að nýta gögn úr vefþjónustu Veðurstofunnar og útbúa nýtt viðmót utan um þau. Hann vísar í viðtal við forstjóra Veðurstofunnar þar sem fram hafi komið að gera ætti gögnin aðgengileg fyrir aðra. Það hafi hins vegar ekki reynst raunin.
„Raunin er sú að skýjahulu-, úrkomu-, hita- og vindakortin eru bara teiknuð með keyptri lausn frá erlendu fyrirtæki sem heitir MapTiler. Þannig þetta eru ekki einu sinni gögn frá þeim,“ segir hann.
„Gögnin á bak við kortin eru hýst þar, læst á bak við aðgangslykil Veðurstofunnar þannig að við getum ekki nýtt þessi gögn á neinn hátt.“
Hann hafi því þurft að leita annarra leiða og sækir nú meðal annars hrá gögn úr HARMONIE-spálíkaninu til dönsku veðurstofunnar, auk gagna frá Evrópumiðstöðinni fyrir meðallangar veðurspár.
Út frá þeim útbýr hann sjálfur skýjahulu-, úrkomu-, hita- og vindakort.
Í nokkrum tilvikum hafi honum jafnvel tekist að uppfæra spákort sín hraðar en Veðurstofunni.
Veltir fyrir sér í hvað fjármunirnir fóru
Jón Trausti tekur fram að Veðurstofan vinni frábært starf en ýmislegt við tæknilega útfærslu nýja vefsins veki spurningar. Hann veltir fyrir sér kostnaði og þeirri vinnu sem sögð er liggja að baki uppbyggingu bakenda hans.
„Manni finnst þetta ekki hafa alveg verið í samræmi við það sem þau hafa sagt opinberlega,“ segir hann.
Hann setur einnig spurningarmerki við að reiða sig á erlenda þjónustu við miðlun veðurupplýsinga, meðal annars með tilliti til þess hvað gerist ef þjónustan verður óaðgengileg eða samband við útlönd rofnar.
„Ef missum sambandið við útlönd, sem eru auðvitað ekki miklar líkur á að gerist, en það gæti gerst og þá einmitt virka ekki þessi spákort,“ segir Jón Trausti.
„Hitt atriðið sem ég sá, af því ég veit að Veðurstofan hefur oft lagt mikla áherslu á að hafa allt hýst innanlands, er öll umferð á vefinn fer í gegnum hérna eitthvað sem heitir Azure Front Door. Þetta er svona Microsoft-þjónusta sem er hýst erlendis. Öll umferðin fer í gegnum hana og svo aftur hingað innanlands til að tengjast vefnum.“
Gaman að vinna með flókin gögn
Jón Trausti og Helga Kristín hafa bæði áratuga reynslu af þróun stafrænna lausna, hann á sviði forritunar og skýjaþjónustu og hún á sviði vefhönnunar.
Þau hafa þó engan fjárhagslegan ávinning af rekstri veðurvefsins.
„Nei, við erum ekki að græða neitt á þessu. Fyrst og fremst vorum við að búa þetta til fyrir okkur,“ segir hann.
Ákvörðunin um að gera vefinn aðgengilegan almenningi hafi einfaldlega sprottið af þeirri hugsun að fleiri gætu haft gagn af honum.
Jón Trausti segir gaman að fylgjast með öllum þeim veðurvefum sem sprottið hafa upp undanfarna daga. Sjálfur hafi hann mikinn áhuga á úrvinnslu og framsetningu gagna.
„Það er svo gaman að vinna með svona flókin gögn og reyna að koma þeim skemmtilega á framfæri.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
