Þriðjungur breskra ungmenna hefur aldrei stundað kynlíf – Þetta eru ástæðurnar
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 22:30
Kynlífsáhugi Breta hefur hrunið á undanförnum 15 árum. Mynd/Getty
Þriðjungur breskra ungmenna á aldrinum 16 til 24 ára hefur aldrei stundað kynmök. Þetta er mikil aukning á aðeins 15 árum. Bretar undir 45 stunda stunda kynmök mun sjaldnar en áður.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Lancet á kynlífi og kynáhuga besku þjóðarinnar sem kallast NATSAL (National Survey of Sexual Attitudes and Lifestyles). Er þetta í fjórða skiptið sem slík rannsókn er gerð en sú fyrsta var gerð árið 1990.
Margt hefur breyst síðan þá, það er að fólk er að stunda sjaldnar og sjaldnar kynlíf, sérstaklega á undanförnum 15 árum.
Mikil fjölgun hreinna meyja og sveina
Þriðjungur breskra ungmenna hefur aldrei stundað kynmök samkvæmt rannsókninni. Það er 33 prósent. 37,7 prósent ungra kvenna eru hreinar meyjar og 28,4 prósent ungra karla eru hreinir sveinar.
Þetta er mikil aukning á milli kynslóða. Árið 2010 voru 18,9 prósent kvenna á aldrinum 16 til 24 ára hreinar meyjar og 18,2 prósent karla á sama aldri hreinir sveinar.
Þá kemur fram að fullorðið fólk undir 45 ára aldri stundar mun sjaldnar kynlíf en áður. Það er að meðaltali aðra hverja viku en fyrir 15 árum síðan var meðaltalið einu sinni í viku.
Auk þess að leggja spurningar fyrir 19 þúsund manns var smærra úrtak tekið í ítarlegri viðtöl. Þar koma fram ýmsar ástæður fyrir því að fólk stundar sjaldnar kynlíf í dag.
Vilja síður eignast börn
Stór ástæða er sú að ungmenni búa oft enn þá í foreldrahúsum, hanga frekar á netinu en að hittast, hafa ekki efni á skemmtanalífi, drekka minna áfengi og glíma við andleg vandamál.
Aðgengi að klámi er einnig nefnt en 81 prósent karla og 37 prósent kvenna horfa á klám. Hjá undir 25 ára er hlutfallið 90 prósent hjá körlum og 50 hjá konum. Athygli vekur hins vegar að hópurinn sem aldrei hefur stundað kynlíf horfir minna á klám en aðrir.
Í rannsókninni kemur einnig fram að færri konur taka getnaðarvarnarpilluna en áður og færri konur vilja eignast börn.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗