Orri Steinn og félagar töpuðu í Lundúnum
Real Sociedad tapaði sínum öðrum leik í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið heimsótti Crystal Palace í 5. umferð keppninnar í Lundúnum.
Leiknum lauk með naumum sigri Crystal Palace, 2:1, en Orri Steinn Óskarsson kom inn á hjá spænska liðinu á 68. mínútu.
Real Sociedad er með 5 stig í 27. sætinu, stigi frá umspilssæti en liðin í 1.–8. sæti fara áfram í 16-liða úrslitin á meðan liðin í 8.–24. sætinu fara í umspil.
Þá var Willum Þór Willumsson í byrjunarliði NEC Nijmegen þegar liðið lagði Rennes í Hollandi, 3:1, en Willum lék fyrstu 87. mínúturnar.
NEC Nijmegen er með 10 stig í 8. sætinu, fimm stigum minna en topplið Bournemouth.
Úrslitin í Evrópudeildinni:
Besiktas – Hapoel Beer Sheva 2:1
Celta Vigo – Bournemouth 1:2
Dinamo Zagreb – Bayer Leverkusen 0:2
Marseille – Levski Sofia 1:0
Olympiacos – AC Milan 2:4
Viktoria Plzen – Benfica 4:0
Union Saint-Gilloise – Lech Poznan 2:2
Salzburg – Ararat-Armenia 2:0
Crystal Palace – Real Sociedad 2:1
Ferencváros – Celje 0:0
Hoffenheim – Sturm Graz 3:1
Juventus – Omonia 4:1
Lyon – Lilleström 0:0
NEC Nijmegen – Rennes 3:1
OFI Krít – Anderlecht 1:3
Sparta Prag – AZ Alkmaar 2:4
Sunderland – Jagiellonia 1:1
Torreense – Celtic 1:2
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗