Þetta var risasigur fyrir okkur
„Þeir eru þarna og við ætlum ekkert að hætta að berjast fyrr en við erum alveg úr þessu,“ sagði Kristinn Pálsson, landsliðsmaður í körfubolta, í samtali við mbl.is um möguleika Íslands á að komast á HM eftir 113:101-sigur á Bosníu í Laugardalshöll í kvöld.
Kristinn skoraði 20 stig í leiknum og átti stóran þátt í að halda HM-draumnum lifandi. Hann sagði sóknarleikinn hafa verið öflugan en ýmislegt þyrfti að laga í vörninni fyrir útileikinn gegn Tyrklandi á sunnudag.
„Við hittum ótrúlega vel. Við vorum búnir að velja leikmenn sem áttu að skjóta og þeir hittu líka ótrúlega vel. Þetta var sóknarlegur leikur hjá báðum liðum og lítið um varnir. Það er eitthvað sem við þurfum að laga fyrir Tyrklandsleikinn.“
Ísland byrjaði af krafti en missti forskotið í öðrum leikhluta. Kristinn taldi liðið hafa farið aðeins fram úr sér í skotvali á þeim kafla en sagði sigurinn þeim mun mikilvægari í ljósi þess að ekki hefði allt gengið upp.
„Þetta var risasigur fyrir okkur að halda út þó að varnarleikurinn væri kannski ekkert eins góður og Tryggvi væri í villuvandræðum allan tímann, mikilvægasti maðurinn okkar. Það er svakalega mikilvægt fyrir sjálfstraustið í liðinu að klára svona leik.“
Íslenska liðið náði aftur góðum tökum á leiknum í þriðja leikhluta og lét ekki aukna ákefð Bosníumanna í þeim fjórða slá sig út af laginu.
„Ég var bara stoltur af strákunum að hafa ekkert verið hræddir við það. Við vorum bara alveg með á nótunum í dag og það er vel gert.“
Kristinn telur sigur í Tyrklandi mögulegan en sagði íslenska liðið þurfa að bæta frammistöðuna frá leiknum í kvöld.
„Það er alltaf hægt að vinna, en þeir eru náttúrulega með besta liðið í Evrópu eins og staðan er í dag. Við þurfum að eiga miklu betri leik en við áttum í dag til þess að vinna þá.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗