Íslendingarnir töpuðu óvænt í Andorra

Rúnar Alex Rúnarsson.

Rúnar Alex Rúnarsson. Ljósmynd/@FCKobenhavn

FC Köbenhavn tapaði óvænt fyrir Inter Escaldes í 4. umferð Sambandsdeildarinnar í fótbolta í Andorra í kvöld.

Leiknum lauk með sigri Inter Escaldes, 2:0, en Rúnar Alex Rúnarsson varði mark FC Köbenhavn og Viktor Bjarki Daðason lék fyrri hálfleikinn.

FC Köbenhavn er í 12. sæti deildarinnar með 7 stig og hefur unnið tvo leiki í deildinni til þessa.

Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á sem varamaður á 63. mínútu hjá Twente þegar liðið tapaði fyrir Freiburg í Þýskalandi, 2:0, en Twente er í 7. sætinu með 9 stig.

Þá tapaði Panathinaikos fyrir Nordsjælland í Danmörku, 3:2, en Sverrir Ingi Ingason er frá keppni vegna meiðsla hjá gríska liðinu sem er með 9 stig í fimmta sætinu.

Úrslit kvöldsins í Sambandsdeildinni:

Borac Banja Luka – Atalanta 2:3
Braga – KuPS 4:0
CSKA Sofia – Trabzonspor 1:2
Freiburg – Twente 2:1
Gent – Rauða stjarnan 1:1
Hajduk Split – St. Truiden 0:2
Inter Escaldes – FC Köbenhavn 2:0
Nordsjælland – Panathinaikos 3:2

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab