Steve lifði ósköp venjulegu lífi – Dag einn komst hann að því að hans hafði verið saknað í 33 ár
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 22:00
Steve Carter sagði sögu sína í hlaðvarpsþættinum What It Was Like á YouTube.
Steve Carter hafði ekki hugmynd um að hans væri saknað. Hann hafði lifað ósköp venjulegu lífi í Bandaríkjunum í 33 ár þegar hann rakst á mynd á vefsíðu þar sem lýst var eftir týndum börnum. Andlitið á myndinni var óhugnanlega kunnuglegt og grunur hans reyndist réttur – þarna var lýst eftir honum sjálfum.
Steve rifjar upp þessa ótrúlegu lífsreynslu í nýlegu viðtali við hlaðvarpið What It Was Like sem vakið hefur talsverða athygli á samfélagsmiðlum. Fjallað er um sögu hans á vef VT.
Steve var ættleiddur fjögurra ára gamall og átti að eigin sögn yndislega foreldra. Hann hafði aldrei haft sérstakan áhuga á að leita uppi líffræðilega foreldra sína en þegar hann og eiginkona hans fóru að huga að barneignum langaði hann að kynna sér sjúkrasögu blóðskyldra ættingja sinna.
Rak upp stór augu
Eftir að hafa séð frétt um konu sem hafði verið rænt á barnsaldri ákvað Steve að skoða gagnagrunn bandarískra samtaka sem halda utan um upplýsingar um týnd börn.
Þar rakst hann á upplýsingar um dreng að nafni Marx Panama Moriarty Barnes sem hafði horfið á Hawaii árið 1977, aðeins sex mánaða gamall. Skráður fæðingardagur drengsins var aðeins einum degi frá fæðingardegi Steve.
Það var þó myndin sem vakti mesta athygli hans en sérfræðingar höfðu útbúið mynd sem sýndi hvernig drengurinn gæti litið út á fullorðinsaldri.
„Þegar ég segi að hann hafi líkst mér myndi ég segja að myndin hafi verið 90 prósent nákvæm,“ segir Steve.
Að áeggjan eiginkonu sinnar, móður og vina hafði hann samband við yfirvöld á Hawaii. DNA-rannsókn staðfesti árið 2011 að hann væri drengurinn sem hafði verið saknað í 33 ár.
Mæðginin hurfu sporlaust
Þann 21. júlí 1977 fór Charlotte Moriarty út að ganga með sex mánaða son sinn á Hawaii. Mæðginin sneru aldrei aftur heim en barnavagn drengsins fannst yfirgefinn við strætisvagnastoppistöð.
Charlotte hafði áður horfið að heiman um tíma en skilað sér aftur. Það var ekki fyrr en þremur vikum síðar að Mark Barnes, faðir drengsins, tilkynnti lögreglu um hvarf þeirra.
Það sem Mark vissi ekki var að sonur hans var kominn í umsjá barnaverndaryfirvalda á Hawaii.
Kona hafði fundist með vannært ungbarn í húsi ókunnugra í Honolulu. Konan, sem talin er hafa verið Charlotte, gaf yfirvöldum rangar upplýsingar um nafn drengsins, fæðingardag hans og föður.
Konan var lögð inn á geðdeild en drengurinn vistaður á barnaheimili. Konan yfirgaf síðar sjúkrahúsið og hvarf sporlaust.
Enginn áttaði sig á því að þetta væri drengurinn sem Mark hafði tilkynnt um hvarf á og var hann að lokum ættleiddur af bandarískum hjónum.
Eldri hálfsystir Steve, Jenny, hafði hins vegar ekki gefið upp vonina um að finna bróður sinn. Henni tókst síðar að fá lögreglu til að taka málið upp að nýju og í kjölfarið var útbúin myndin sem Steve rakst á á netinu.
Örlög móðurinnar enn ráðgáta
Eftir að Steve komst að sannleikanum um uppruna sinn fékk hann í hendur bréf sem líffræðileg móðir hans hafði skrifað árið áður en hún hvarf.
Í einu þeirra viðurkenndi hún að hana hefði ekki langað til að verða móðir. Í öðru viðraði hún þá hugmynd að raka af sér hárið svo fólk myndi ekki þekkja hana.
Þrátt fyrir að hafa tekist að púsla saman stórum hluta sögu sinnar veit Steve enn ekki hvað varð um líffræðilega móður hans.
Hann hefur hins vegar hitt hálfsystur sína og var í reglulegu símasambandi við líffræðilegan föður sinn. Þeir töluðu saman einu sinni til tvisvar í mánuði en feðgarnir náðu aldrei að hittast áður en Mark lést.
Steve hefur á undanförnum árum nýtt reynslu sína til góðs og tekið þátt í vitundarvakningu um týnd börn í samstarfi við samtökin sem héldu utan um upplýsingar um hvarf hans öll þessi ár.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗