Norðmenn mæra Landhelgisgæsluna: „Íslendingar eru harðir af sér“
Norski fjölmiðillinn VG fjallaði í kvöld um björgunarafrekið í gær þar sem skipverjum af fiskibátnum Jökli var bjargað úr sjónum um 60 sjómílur austur af landinu við erfið skilyrði. Fjórtán af sautján manna áhöfninni var bjargað á lífi en þrír fórust.
Vekur VG athygli á því að þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRÓ hafi þar flogið þrefalt lengra en öruggt þyki, sem samkvæmt reglum eru aðeins 20 mílur þegar um eina þyrlu er að ræða.
Margir tjá sig um fréttina í athugasemdum á Facebook hjá miðlinum og mæra þar Landhelgisgæsluna og aðra sem komu við sögu í gær.
„Raunverulegar hetjur“
„Allt lof til björgunaraðilanna“
„Þeir ættu að fá hetjuorðu. Án þeirra hefði útkoman orðið mun verri“
„Stórkostlegt afrek hjá bæði viðbragðsaðilum og líka áhöfn skipsins sem náði að halda hópinn í sjónum. Samúðarkveðjur til aðstandenda þeirra þriggja sem fórust.“
„Íslendingar eru harðir af sér“
„Þetta eru hetjur hversdagsins“
„Þetta kalla ég afrek, en á sama tíma veit ég nákvæmlega hvers þessir viðbragðsaðilar eru megnugir. Ég hef átt margar æfingar með þessum hópi á öllum starfsstöðvum í Noregi, þau eru frábær.“
„Viðbragðsaðilar eru hetjurnar og stundum þarf bara að bregðast við.“
„Þessar hetjur eiga heiður skilið“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗