Pyntingar á sænskri heimavist

Aðalbygging Sigtunaskolan Humanistiska Läroverket, annálaðs sænsks menntaskóla sem Karl Gústaf Svíakonungur og Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar þar til hann var myrtur árið 1986, sátu. Í annað sinn er nú komið upp ofbeldismál við skólann sem ákært er fyrir. Ljósmynd/Wikipedia.org/Udo Schröter

„Pyntingalík“ ofbeldisverk urðu tilefni lögreglurannsóknar á því sem viðgengst á heimavist sænska framhaldsskólans Sigtunaskolan Humanistiska Läroverket, SSHL, virtum framhaldsskóla í Svíþjóð sem meðal annars er kunnur fyrir að hann sátu Karl Gústaf XVI. Svíakonungur og Olof Palme forsætisráðherra á sinni tíð.

Atvikið, sem varð til þess að lögregla tók að rannsaka hvað átt hefur sér stað á einni af heimavistum skólans, átti sér stað aðfaranótt 2. október í haust.

Tveir eldri nemendur eru þá sagðir hafa þvingað fjóra yngri inn í herbergi og í nokkrar klukkustundir eiga yngri nemendurnir að hafa verið neyddir til að niðurlægja og beita hver annan ofbeldi. Hefur Lisa dos Santos héraðssaksóknari lýst atburðum næturinnar sem pyntingalíkum.

Hafa sex nemendur skólans nú verið ákærðir, meðal annars fyrir grófa kynferðislega áreitni, líkamsárás og ólögmæta nauðung.

Ekki fyrsta tilfellið

Við rannsókn málsins opnaði lögregla peningaskáp í herbergi eins ákærðu á heimavistinni og fann þar minnisbók sem lýsir fyrirbæri er eldri nemar við skólann kalla „battning“ og er hugtak yfir þá goggunarröð, busavígslu og refsingarmenningu sem eldri nemendur skólans telja sig eiga rétt á gagnvart hinum yngri.

Raunar komst „battning-kerfið“ í fréttir í tengslum við svipað mál við SSHL árið 2013 í kjölfar þess er fimm eldri nemendur við SSHL réðust á yngri nemanda við heimavistina og beittu hann kerfisbundnu ofbeldi. Þeir atburðir áttu sér þó stað haustið 2011, en réttarhöldin fóru fram í febrúar 2013 og vöktu þjóðarathygli í Svíþjóð.

Hafði fórnarlambið þá neitað að þjónusta eldri nemendurna á heimavistinni og þar með brotið gegn „battning“-reglunum. Voru allir fimm eldri nemendurnir sakfelldir fyrir líkamsárás og dæmdir til skilorðsbundinnar fangelsisvistar og samfélagsþjónustu. Kveikti málið háværa þjóðfélagsumræðu í Svíþjóð um ofbeldis- og busavígslumenningu í einkareknum heimavistarskólum landsins.

Hlutverk „refsingaverkstjóra“ tíundað

Í bókinni, sem lögregla fann í peningaskápnum við rannsókn málsins í haust, kemur skipulag innra valdakerfis heimavistarinnar fram, meðal annars að umsjónarmaður (s. prefekt), varaumsjónarmaður og „refsingaverkstjóri“ svokallaður beri ábyrgð á rekstri „battning“-kerfisins. Þessi hlutverk ganga í arf milli nemenda á lokaári og gera reglurnar ráð fyrir því að sérstök áhöld til refsinga séu tiltæk á hverjum tíma, er þar nefnt skóhorn, belti og skylmingasverð.

Telur dos Santos saksóknari bókina sanna að atburðir haustsins séu ekki einangrað tilvik heldur hluti níðkerfis sem skotið hafi rótum innan skólans.

Allir ákærðu neita sök, en viðurkenna þó að ákveðin atvik hafi átt sér stað.

SVT

SVT-II (saksóknari tjáir sig um grunsemdirnar)

SVT-III (frétt ríkisútvarpsins af ákærunum)

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab