Ætlum að vinna í Tyrklandi
„Við höfum sýnt það oft að við getum unnið hvaða lið sem er og við getum tapað á móti hvaða liði sem er,“ sagði Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta, í samtali við mbl.is eftir 113:101-sigur Íslands á Bosníu í undankeppni HM í Laugardalshöll í kvöld.
Jón Axel skoraði 18 stig í sigrinum sem heldur HM-vonum Íslands lifandi. Næsta verkefni er útileikur gegn Tyrklandi á sunnudag og hann sér enga ástæðu til að fara þangað með annað en sigur í huga.
„Síðast þegar við fórum til Tyrklands töpuðum við á flautukörfu. Við þurfum bara að koma jafn einbeittir og við komum í leikinn í dag. Ég býst ekki við neinu öðru en að við förum og ætlum að vinna þennan leik.“
Ísland skoraði 32 stig í fyrsta leikhluta gegn Bosníu en gestirnir náðu að snúa taflinu við og komast yfir í öðrum leikhluta. Íslenska liðið var þó með þriggja stiga forskot í hálfleik og náði aftur góðum tökum á leiknum í þeim þriðja.
„Þeir hittu nokkra þrista og við klikkuðum á nokkrum galopnum skotum. Þetta er bara körfubolti. Þetta gerist í körfuboltanum. Það er gott að við náðum að stöðva blæðinguna og koma svona sterkir út í þriðja leikhluta.“
Jón Axel setti niður mikilvægar körfur þegar Bosníumenn reyndu að vinna upp forskotið en hann benti á að fleiri hefðu lagt sitt af mörkum, þar á meðal Kristinn Pálsson sem skoraði 20 stig.
„Það var eiginlega bara karfa eftir körfu eftir körfu sem var stór hjá okkur til þess að ná að halda flæðinu gangandi og halda þessu í um tíu, tólf stigum hjá okkur.“
Ísland tapaði stórt fyrir Tyrklandi á heimavelli fyrr í undankeppninni. Jón Axel sagði skotnýtinguna og baráttuna undir körfunum þurfa að vera í lagi til að stríða Tyrkjum á sunnudag.
„Þú þarft að setja skot og vona að þeir klikki á nokkrum skotum og helst bara að stoppa sóknarfráköstin þannig að þeir séu bara að fá eitt skot í hverri sókn.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗