Bókin er í sókn

Gestir Bókahátíðar í ár voru 25% fleiri en í fyrra og fyrra aðsóknarmet því slegið. Ljósmynd/Elsa Katrín

„Aldrei hafa fleiri sótt Bókahátíð í Hörpu en um síðustu helgi. Alls lögðu 10.500 gestir leið sína á hátíðina í ár, sem er 25% fjölgun frá fyrra ári þegar þáverandi aðsóknarmet var slegið,“ segir Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, sem stendur fyrir hátíðinni.

Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda sem stendur fyrir Bókahátíðinni ár hvert. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Segir hún mikinn áhuga á bókum og lestri hafa sett svip sinn á helgina og greinilegt að margir voru ekki síður að leita að lesefni fyrir sjálfa sig en jólagjöfum fyrir aðra.

Menning Morgunblaðsins stóð fyrir veglegri bókmenntadagskrá í Rímu. Anna Rún Frímannsdóttir ræddi við rithöfundana Einar Lövdahl, Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur og Ásu Marin. Ljósmynd/Elsa Katrín

„Árið 2025 sóttu 8.400 gestir Bókahátíðina og hafði aðsókn þá aldrei verið meiri. Leiða má líkum að því að farsælt samstarf hátíðarinnar við Morgunblaðið, sem hófst það ár, hafi átt sinn þátt í þeirri góðu aðsókn. Í ár var enn bætt um betur og dagskrá hátíðarinnar bæði umfangsmeiri og fjölbreyttari en áður,“ segir Bryndís og bendir á að barnabókadagskráin hafi verið umfangsmeiri, tíu þýðendur sagt frá nýútgefnum þýðingum sínum, bætt hafi verið við upplestri ljóða og leikrita, sex erlendir gestahöfundar hafi sótt hátíðina heim auk þess sem streymt hafi verið á mbl.is frá upplestri 70 höfunda.

Svala Þormóðsdóttir stóð vaktina í bás Eddu sem gefur meðal annars út Andrés önd. Ljósmynd/Elsa Katrín

„Menningarblaðamenn Morgunblaðsins stýrðu jafnframt veglegri bókmenntadagskrá þar sem rætt var við fjölmarga rithöfunda. Þessi mikla fjölgun gesta er ánægjulegur vitnisburður um þann meðbyr sem bókin nýtur um þessar mundir,“ segi Bryndís og tekur fram að ljóst sé að mikilvæg umræða um lestur og lesskilning hafi vakið fólk til umhugsunar um gildi lestrar.

Skoski metsöluhöfundurinn Jenny Colgan var sérstakur gestur á bókmenntadagskrá Menningar Morgunblaðsins. Hún sat fyrir svörum hjá Helgu Soffíu Einarsdóttur þýðanda sínum. Ljósmynd/Elsa Katrín

„Svo er þetta líka mjög sterkt útgáfuár, ekki bara hvað fjölda útgefinna titla varðar heldur einnig gæði og fjölbreytileika. Þá ber sérstaklega að þakka þann mikla áhuga og velvilja sem fjölmiðlar hafa sýnt bókum og lestri.

Jenny Colgan gaf sér tíma til að árita bækur og ræða við aðdáendur sína. Ljósmynd/Elsa Katrín

Víðtæk og lifandi umfjöllun um bókmenntir, höfunda og lestrarmenningu er ómetanlegur þáttur í því að efla áhuga almennings,“ segir Bryndís og bætir við: „Bókin skipar sem fyrr sérstakan sess í jólahaldi Íslendinga en metaðsóknin um helgina gefur einnig tilefni til bjartsýni um stöðu hennar í daglegu lífi fólks. Bókin er ekki aðeins gjöf sem við viljum gefa öðrum heldur líka gjöf sem við viljum gefa sjálfum okkur.“

Menningarblaðamennirnir Ragnheiður Birgisdóttir og María Margrét Jóhannsdóttir kynntu nýútkomið Bókablað Menningar Morgunblaðsins. Ljósmynd/Elsa Katrín

Ungir jafnt sem aldnir fundu eitthvað við sitt hæfi á Bókahátíð í ár enda úrvalið mikið. Ljósmynd/Elsa Katrín

Rithöfundarnir Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Margrét Bjarnadóttur voru meðal þeirra sem afgeiddu bækur á Bókahátíð um helgina. Ljósmynd/Elsa Katrín

Aðalsteinn Ásberg hjá Dimmu og Halldór Eldjárn og Unnur Ólafsdóttir hjá Gullbringu kynntu bækur fyrir gesti. Ljósmynd/Elsa Katrín

Gestir voru bæði að skoða bækur til gjafar og bækur fyrir sig. Ljósmynd/Elsa Katrín

Tómas Hermannsson stóð vaktina hjá Sögum.

Tómas Hermannsson stóð vaktina hjá Sögum. Ljósmynd/Elsa Katrín

Valur Gunnarsson var meðal þeirra höfunda sem lásu upp úr verkum sínum. Upplestrunum á Norðurbryggju var streymt beint á mbl.is og verða þær upptökur senn aðgengilegar á menningarvefnum. Ljósmynd/Elsa Katrín

Signý Gunnarsdóttir var meðal þeirra sem stóðu vaktina á Bókahátíð.

Signý Gunnarsdóttir var meðal þeirra sem stóðu vaktina á Bókahátíð. Ljósmynd/Elsa Katrín

Flestir gestir gripu með sér eintak af Bókatíðindum ársins.

Flestir gestir gripu með sér eintak af Bókatíðindum ársins. Ljósmynd/Elsa Katrín

Grænlensku höfundarnir Arnaq Johansen og Uilu Pedersen voru sérstakir gestir Bókahátíðar í ár. Ljósmynd/Elsa Katrín

Boðið var upp á sérstaka barnadagskrá fyrir yngstu lesendurna.

Boðið var upp á sérstaka barnadagskrá fyrir yngstu lesendurna. Ljósmynd/Elsa Katrín

Yngstu lesendurnir nutu þess að hlusta á Ævar Þór Benediktsson lesa upp úr nýjustu bók sinni. Ljósmynd/Elsa Katrín

Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins brá sér í hlutverk bóksala á Bókahátíðinni. Ljósmynd/Elsa Katrín

Flestir gestir Bókahátíðar gripu með sér eintak af Bókahátíðunum til að auðvelda sér að velja jólagjafir ársins. Ljósmynd/Elsa Katrín

Satu Rämö kynnti bækur sínar á Bókahátíð.

Satu Rämö kynnti bækur sínar á Bókahátíð. Ljósmynd/Elsa Katrín

Páll Valsson útgáfustóri, Pétur Már Ólafsson útgefandi hjá Bjarti & Veröld ásamt rithöfundinum Birgi Tjörva Péturssyni. Ljósmynd/Elsa Katrín

Guðni Ágústsson kynnti nýútkomna og myndskreytta útgáfu af Njálu.

Guðni Ágústsson kynnti nýútkomna og myndskreytta útgáfu af Njálu. Ljósmynd/Elsa Katrín

Barnabækur runnu út í Hörpu.

Barnabækur runnu út í Hörpu. Ljósmynd/Elsa Katrín

Dögg Hjaltalín og Anna Lea Friðriksdóttir útgefendur Sölku og Guðrún Vilmundardóttir útgefandi Benedikt stóðu vaktina í sínum básum. Ljósmynd/Elsa Katrín

Birgitta Elín Hassell útgefandi Bókaveitunnar afgreiddi bækur um helgina.

Birgitta Elín Hassell útgefandi Bókaveitunnar afgreiddi bækur um helgina. Ljósmynd/Elsa Katrín

Jakob F. Ásgeirsson útgefandi Uglu stóð vaktina og ræddi við gesti. Ljósmynd/Elsa Katrín

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab