Lokaði fyrir færslur eftir 140 milljóna millifærslu
Íslandsbanki hafði 6. október 2022 upplýst félagið um að þrátt fyrir að lokað hefði verið fyrir inn- og útborganir á reikningum þess hefði ekki verið lagt hald á fjármunina. Félaginu væri frjálst að færa þá til annarrar fjármálastofnunar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Landsréttur staðfesti í dag sýknu Íslandsbanka af kröfum íslenska tæknifyrirtækisins Talk Liberation ehf. um viðurkenningu á skaðabótaskyldu bankans vegna ákvarðana hans um að loka fyrir færslur á reikningum félagsins og slíta í kjölfarið öllum viðskiptum við það.
Málið á rætur að rekja til þess að greiðsla að fjárhæð 997.500 Bandaríkjadalir, sem þá jafngilti tæpum 140 milljónum króna, barst inn á gjaldeyrisreikning félagsins í september árið 2022.
Greiðslan var að mati bankans í ósamræmi við áður gefnar upplýsingar um mánaðarlega veltu félagsins. Þegar ráðist var í nýtt áhættumat og áreiðanleikakönnun þóttu upplýsingar um eignarhald félagsins og tilurð greiðslunnar ekki nægilega áreiðanlegar.
Gaf upp allt að fimm milljóna króna veltu á mánuði
Talk Liberation var stofnað hér á landi í júní 2021. Samkvæmt því sem fram kemur í málatilbúnaði félagsins var tilgangur þess að þróa vefþjónustuhugbúnað til notkunar fyrir almenning á grunni sjálfbærni og grænnar orku. Móðurfélag þess var stofnað samkvæmt lögum Cooks-eyja um alþjóðleg félög.
Félagið óskaði eftir að hefja viðskipti við Íslandsbanka í ágúst 2021 og fór í kjölfarið fram áreiðanleikakönnun og áhættumat í samræmi við lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Félagið gaf þá upp að mánaðarleg velta þess yrði á bilinu núll til fimm milljónir króna. Að undangenginni áreiðanleikakönnun hófust viðskipti félagsins við bankann í byrjun september sama ár.
Þann 20. september 2022 barst fyrrgreind greiðsla inn á gjaldeyrisreikning félagsins frá fyrirtækinu YMS Market Access Limited, sem samkvæmt því sem fram kemur í málatilbúnaði aðila var skráð í Hong Kong.
Framkvæmdastjóri Talk Liberation hafði óskað eftir því í samskiptum við bankann að félagið fengi sérstakan viðskiptastjóra vegna fyrirhugaðrar aukningar á umsvifum þess. Daginn eftir að greiðslan barst upplýsti hún bankann um innborgunina.
Þann 23. september lokaði Íslandsbanki tímabundið fyrir færslur á reikningum félagsins og óskaði eftir frekari upplýsingum um eignarhald þess og uppruna fjármunanna, auk samþykkta og stofngagna félagsins.
Þann 6. október 2022 sendi lögmaður Talk Liberation starfsmanni Íslandsbanka upplýsingar um móðurfélagið sem lýst var sem trúnaðarupplýsingum. Strax í kjölfarið barst bankanum annar tölvupóstur frá lögmanninum þar sem fram kom að gögnin hefðu verið send fyrir mistök og var þess óskað að þeim yrði eytt. Af gögnunum mátti að mati bankans ráða að greiðslan sem barst inn á reikning Talk Liberation í september hefði verið vegna kaupa á 19% hlut í móðurfélaginu. AFP
Ósamræmi í gögnum um eignarhald
Í samskiptum lögmanns Talk Liberation við bankann kom fram að Suzette Dawson, framkvæmdastjóri félagsins, væri eini raunverulegi eigandi þess.
Gögn sem bankanum bárust þóttu hins vegar ekki renna fullnægjandi stoðum undir þær upplýsingar.
Meðal annars lágu fyrir gögn um að á hluthafafundi móðurfélagsins í janúar 2022 hefði verið samþykkt að gefa út 100 milljónir hluta, þar af 30 milljónir hluta í flokki sem veitti atkvæðisrétt. Í öðru skjali kom fram að Dawson ætti einn hlut í móðurfélaginu.
Bankanum barst jafnframt yfirlýsing frá fjárvörslufyrirtæki á Cooks-eyjum um að Dawson ætti allt hlutafé móðurfélagsins. Bankinn taldi yfirlýsinguna hins vegar ekki fullnægjandi staðfestingu á raunverulegu eignarhaldi enda stafaði hún frá einkaaðila og var hvorki staðfest af opinberum aðila né studd gögnum úr opinberum skrám.
Sendi trúnaðargögn fyrir mistök
Þann 6. október 2022 sendi lögmaður Talk Liberation starfsmanni Íslandsbanka upplýsingar um móðurfélagið sem lýst var sem trúnaðarupplýsingum.
Strax í kjölfarið barst bankanum annar tölvupóstur frá lögmanninum þar sem fram kom að gögnin hefðu verið send fyrir mistök og var þess óskað að þeim yrði eytt.
Af gögnunum mátti að mati bankans ráða að greiðslan sem barst inn á reikning Talk Liberation í september hefði verið vegna kaupa á 19% hlut í móðurfélaginu.
Upplýsingarnar þóttu ekki samrýmast því sem áður hafði komið fram um eignarhald félagsins.
Taldi Íslandsbanki sér ekki fært að ljúka áreiðanleikakönnuninni. Viðskipti við félagið voru að mati bankans áhættusöm og féllu utan áhættuvilja hans. Þá taldi bankinn að gagnkvæmt traust væri ekki lengur fyrir hendi.
Var öllum viðskiptum við félagið sagt upp 12. október 2022.
Sagði bankann hafa valdið óafturkræfum skaða
Talk Liberation taldi aðgerðir Íslandsbanka ólögmætar og byggði á því að félagið hefði veitt allar nauðsynlegar upplýsingar um raunverulegt eignarhald sitt og uppruna fjármunanna.
Félagið taldi að millifærslan hefði ekki verið í ósamræmi við áður gefnar upplýsingar um veltu þess þar sem um hefði verið að ræða óreglulega innborgun vegna aukningar hlutafjár en ekki reglulegar tekjur.
Þá taldi félagið að bankanum hefði verið rétt að fresta framkvæmd áreiðanleikakönnunarinnar til að raska ekki eðlilegum framgangi viðskipta.
Talk Liberation hélt því fram að aðgerðir bankans hefðu valdið félaginu óafturkræfum skaða á orðspori þess og ímynd auk hagnaðarmissis og beinna fjárútláta.
Félaginu hefði verið gert ókleift að fylgja eftir áformum sínum um starfsemi hér á landi og standa við skuldbindingar sínar gagnvart meðal annars starfsfólki, hluthöfum og viðskiptavinum.
Fjármunirnir endursendir í júní 2023
Íslandsbanki hafði 6. október 2022 upplýst félagið um að þrátt fyrir að lokað hefði verið fyrir inn- og útborganir á reikningum þess hefði ekki verið lagt hald á fjármunina. Félaginu væri frjálst að færa þá til annarrar fjármálastofnunar.
Talk Liberation leitaði síðar til Sparisjóðs Strandamanna sem samþykkti umsókn félagsins um bankaviðskipti í apríl 2023. Sparisjóðurinn sleit þó viðskiptasambandinu nokkru síðar.
Talk Liberation hélt því fram að samskipti Íslandsbanka við sparisjóðinn hefðu leitt til þess að viðskiptunum var slitið. Íslandsbanki hafnaði þeirri staðhæfingu.
Héraðsdómur taldi ósannað að Íslandsbanki hefði komið í veg fyrir að félagið gæti aflað sér nýs viðskiptabanka eða haldið starfsemi sinni áfram.
Þann 12. júní 2023 voru fjármunirnir á reikningum Talk Liberation hjá Íslandsbanka endursendir YMS Market Access Limited.
Skylt að hafa viðvarandi eftirlit
Héraðsdómur Reykjaness sýknaði Íslandsbanka af kröfum Talk Liberation 30. september í fyrra.
Í forsendum héraðsdóms kom fram að bankanum hefði ekki eingöngu borið skylda til að kanna eignarhald og bakgrunn félagsins við upphaf viðskiptasambandsins heldur einnig að hafa viðvarandi eftirlit með því.
Bankanum hefði því verið rétt að framkvæma nýja áreiðanleikakönnun og rannsaka nánar bakgrunn og tilgang greiðslunnar í ljósi fjárhæðar hennar. Breytti þar engu þótt um óreglulega innborgun hefði verið að ræða en ekki almenna veltu félagsins.
Héraðsdómur tók undir með bankanum að gögn um raunverulegt eignarhald félagsins hefðu ekki að öllu leyti verið skýr og áreiðanleg. Upplýsingarnar sem sendar voru bankanum fyrir mistök hefðu jafnframt verið til þess fallnar að auka enn á þá óvissu.
Taldi dómurinn bankanum hafa verið heimilt, eins og á stóð, að loka tímabundið fyrir viðskipti á reikningum félagsins og slíta síðar viðskiptasambandinu.
Ekki sýnt fram á tjón
Héraðsdómur taldi aðgerðir bankans hafa verið í samræmi við lög og almenna viðskiptaskilmála bankans og réttlætanlegar miðað við þær upplýsingar sem bankinn hafði undir höndum á þeim tíma.
Dómurinn tók þó sérstaklega fram að ekki væri þar með slegið föstu að grunur bankans um meinta ranga upplýsingagjöf hefði verið á rökum reistur.
Þá hefði félagið hvorki sýnt fram á að það hefði orðið fyrir tjóni né gert grein fyrir orsakatengslum milli aðgerða bankans og meints tjóns.
Landsréttur staðfestir niðurstöðuna
Landsréttur staðfesti í dag niðurstöðu héraðsdóms með vísan til forsendna hans.
Féllst rétturinn á að ákvörðun Íslandsbanka um að framkvæma nýtt áhættumat og nýja áreiðanleikakönnun hefði átt sér fullnægjandi stoð í lögum og viðskiptaskilmálum bankans. Þá hefðu þær upplýsingar sem bankinn hafði undir höndum ekki gefið honum tilefni til að fresta framkvæmd áreiðanleikakönnunarinnar.
Taldi Landsréttur ekki tilefni til að hrófla við því mati bankans að upplýsingar um eðli greiðslunnar og eignarhald félagsins hefðu ekki verið nægilega áreiðanlegar og að það hefði gefið bankanum nægilegt tilefni til að slíta viðskiptasambandinu.
Jafnframt vísaði Landsréttur til þess að félagið hefði gengist undir þá viðskiptaskilmála að bankinn mæti hverju sinni hvort þær upplýsingar sem hann fengi í hendur væru fullnægjandi til að stofna til viðskiptasambands eða halda því áfram.
Málskostnaður féll niður bæði í héraði og fyrir Landsrétti.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/54/54/1545459.jpg)
