Segir að morðingi föður síns eigi skilið orðu
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 21:30
Samantha segir að faðir hennar hafi verið skrímsli.
Samantha Bryan, dóttir hins alræmda barnamorðingja Ian Huntley, segir að samfanginn sem myrti hann eigi skilið að fá orðu. Lýsir hún föður sínum sem skrímsli.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Hin 28 ára Samantha Bryan hefur hrósað Anthony Russell, samfanga föður hennar Ian Huntley, fyrir að myrða hann í Frankland fangelsinu í Durham í febrúar síðastliðnum. Huntley, sem var að afplána lífstíðardóm fyrir morðin á Holly Wells og Jessicu Chapman árið 2002, var barinn til dauða með járnröri.
Hafi gert heiminum greiða
Hinn 44 ára Russell var nýlega dæmdur til lífstíðarfangelsis fyrir morðið sem var af yfirlögðu ráði og fyrir fram skipulagt. Russell sagðist vera stoltur af því að hafa myrt Huntley, sem er einn alræmdasti barnamorðingi Bretlands, og í raun skipti það litlu fyrir refsingu hans. En Russell var þegar að afplána lífstíðardóm fyrir tvö önnur morð. „Fjandinn hafi það, ég verð hér út lífið hvort eð er,“ var haft eftir Russell eftir morðið.
Sjá einnig:
Brjáluð út í föður sinn og óskar honum dauða - „Það er til sérstakur staður í helvíti fyrir hann”
Samantha Bryan segir að Russell hafi „gert heiminum greiða“ með því að myrða föður hennar og að hann „verðskuldi orðu“. Sagði hún föður sinn hafa verið skrímsli sem aldrei hefði verið hægt að betra.
Hitti aldrei föður sinn
Samantha var aðeins tveggja ára þegar faðir hennar framdi ódæðið í bænum Soham og varð einn alræmdasti morðingi landsins. Hún hefur aldrei hitt hann og hefur aldrei viljað það.
Sagðist hún ekki leggja blessun sína yfir önnur ódæði sem Anthony Russell hafi framið. Hann ætti vissulega skilið að dvelja í fangelsi út lífið.
Samantha er ekki ein um að fagna dauða Ian Huntley. Það gerir móðir hennar og fyrrverandi sambýliskona hans, Katie Bryan, einnig. Katie sagðist hafa kynnst Ian þegar hún var aðeins fimmtán ára og að hann hefði beitt hana langvarandi ofbeldi og hótunum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗