Viktor Gísli frábær í Meistaradeildinni
Viktor Gísli Hallgrímsson átti mjög góðan leik í marki Barcelona þegar liðið tók á móti GOG í milliriðlakeppni Meistaradeildarinnar í handbolta á Spáni í kvöld.
Leiknum lauk með sjö marka sigri Barcelona, 35:28, en Viktor Gísli varði níu skot og var með 34 prósent markvörslu.
Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk fyrir Barcelona sem er í öðru sæti milliriðils tvö með 6 stig, tveimur stigum meira en Magdeburg en Barcelona á leik til góða á þýska liðið.
Reynir Þór Stefánsson skoraði tvö mörk fyrir Melsungen þegar liðið tapaði fyrir Füchse Berlín, 33:29, í Berlín en Melsungen er með 2 stig í fjórða sæti milliriðils eitt.
Þá skoraði Bjarki Már Elísson eitt mark fyrir PSG þegar liðið gerði jafntefli við Wisla Plock í París, 29:29, en PSG er í 2. sæti milliriðils eitt með 5 stig.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗