HM-draumur Íslands enn á lífi

HM-draumur íslenska karlalandsliðsins í körfubolta lifir enn eftir sanngjarnan heimasigur á Bosníu, 113:101, í undankeppninni í Laugardalshöll í kvöld. Með sigrinum fór Ísland upp í fimmta sæti J-riðils en þrjú efstu liðin fara á HM og á íslenska liðið þrjá leiki eftir.

Næsti leikur Íslands er á útivelli gegn Tyrklandi á sunnudaginn kemur. Síðustu leikirnir eru svo í febrúar og mars á næsta ári, á heimavelli gegn Serbíu og útivelli gegn Bosníu.

Íslenska liðið byrjaði af miklum krafti og komst í 17:8 þegar fyrsti leikhluti var tæplega hálfnaður. Munurinn var svo tíu stig í stöðunni 25:15 þegar Martin Hermannsson skoraði þriggja stiga körfu.

Elvar Már Friðriksson í baráttunni í kvöld.

Hilmar Smári Henningsson kom Íslandi síðan í 32:19 með annarri þriggja stiga körfu og var staðan eftir fyrsta leikhluta 32:23.

Ísland hélt undirtökunum framan af í öðrum leikhluta en Emir Sulejmanovic minnkaði muninn í 38:34 með þriggja stiga körfu og jafnaði með annarri slíkri þegar fjórar mínútur voru eftir af fyrri hálfleik.

Adin Vrabac kom Bosníu í 51:50 þegar skammt var eftir af öðrum leikhluta en Ísland gerði vel í lok leikhlutans og var staðan í hálfleik 60:57, Íslandi í vil.

Ægir Þór Steinarsson

Elvar Már Friðriksson fór á kostum í fyrri hálfleik og var stigahæstur með 16 stig. Martin Hermannsson gerði ellefu og Tryggvi Snær Hlinason níu.

Ísland byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og náði tíu stiga forskoti, 75:65, þegar þriðji leikhluti var hálfnaður eftir fallegan þrist frá Kristni Pálssyni. Stuttu seinna skoraði hann annan þrist og kom Íslandi í 80:68 með sinni fimmtu þriggja stiga körfu.

Munurinn var einmitt tólf stig fyrir fjórða og síðasta leikhlutann, 84:72. Hann var orðinn 15 stig snemma í fjórða leikhluta, 88:73, þegar Elvar skoraði þriggja stiga körfu. Jón Axel Guðmundsson kom Íslandi svo í 94:80 þegar fimm mínútur voru eftir með öðru þriggja stiga skoti.

Tryggvi Snær Hlinason

Bosnía svaraði og var tíu stiga munur, 100:90, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Ísland hélt Bosníu frá sér það sem eftir lifði leiks og vann að lokum sanngjarnan sigur.

Elvar Már Friðriksson átti stórkostlegan leik fyrir Ísland, skoraði 30 stig og gaf tíu stoðsendingar. Kristinn Pálsson kom næstur með 20 stig, Jón Axel Guðmundsson gerði 18, Martin Hermannsson 16 og Tryggvi Snær Hlinason 11.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab