Tónlistin sem sleppir ekki takinu: „Eitthvað sem maður leitar aftur í, svona eins og laxinn sem kemur í ána sína og kemur heim“
Eyþór Arnalds hefur verið á ferð og flugi í íslensku tónlistarlífi í áratugi og um þessar mundir er hann aftur kominn á svið með tveimur hljómsveitum sem skipa stóran sess í tónlistarsögu landsins, Tappa Tíkarrassi og Todmobile. Með þeirri fyrrnefndu rifjar hann upp æskuárin og upphafið að íslensku pönkbylgjunni, en með þeirri síðarnefndu heldur hann áfram að kanna nýjar víddir tónlistarinnar. Þótt leiðin hafi legið í gegnum fjölmörg önnur verkefni og jafnvel tæknigeirann hefur tónlistin alltaf togað í hann. „Það er bara eitthvað sem maður leitar aftur í, svona eins og laxinn sem kemur í ána sína og kemur heim,“ segir Eyþór sem var gestur vikunnar í hlaðvarpinu Popparasögur.
Saga Tappa Tíkarrass nær aftur til unglingsáranna þegar Eyþór var rétt rúmlega fermdur. Upphafið var kannski ekki mjög hátíðlegt. Eyjólfur Jóhannsson, gítarleikari, þurfti bassaleikara en Eyþór sagðist ekkert kunna á bassa. „Skiptir engu máli, þetta eru nú aðallega bara drunur,“ var svarið og Eyþór keypti sér bassa og hóf að spila. Þeir félagar voru ekki nema 14–15 ára þegar þeir voru farnir að spila á börum og víðar.
Síðar kynntust þeir Björk Guðmundsdóttur, sem þá lék á þverflautu í instrumentalhljómsveit með Eyþóri. Þegar hún flutti erlendis sem au pair stofnuðu strákarnir Tappa Tíkarrass, þar sem Eyþór tók við söngnum, Jakob Smári Magnússon spilaði á bassa og Eyjólfur á gítar. Þegar Björk kom aftur var hún fljót að sjá að nýja hljómsveitin væri mun skemmtilegri en instrumentaltilraunirnar sem þau höfðu verið að fást við. Hún gekk því til liðs við sveitina sem söngkona.
Tappi Tíkarrass varð hluti af einstaklega frjóu tímabili í íslensku tónlistarlífi sem kennt er við Rokk í Reykjavík. Að mati Eyþórs var þetta tími mikillar sköpunargleði og frelsis þar sem hljómsveitir voru óhræddar við að prófa nýjar leiðir. Sjálfur lýsir hann því hvernig þeir félagar sömdu stundum lög með óhefðbundnum aðferðum, meðal annars með því að kasta upp á hvaða hljómar ættu að koma næst. „Við vorum að gera eitt lag á dag,“ segir hann og rifjar upp hvernig þeir gátu einfaldlega fengið einhvern til að nefna hljóma og byggt lag í kringum þá.
Áhrif bresku pönkbylgjunnar voru mikil, en Eyþór segir íslensku senuna hafa einkennst af meiri gleði yfir frelsinu en reiði. „Meiri svona gleði yfir því að vera frjáls.“ Hann minnist þess sérstaklega þegar vinur hans kom frá London með plötur Sex Pistols, The Clash og The Stranglers. Það var opinberun sem opnaði honum nýjan heim. Hann telur að sjálfstraustið sem skapaðist á þessum árum, trúin á að hægt væri að gera það sem manni datt í hug án þess að láta aðra dæma, hafi lagt grunninn að því blómaskeiði íslenskrar tónlistar sem fylgdi í kjölfarið.
Frá einu lagi til einnar vinsælustu hljómsveitar landsins
Todmobile varð hins vegar til með allt öðrum hætti en hefðbundin hljómsveit. Upphaflega stóð aðeins til að taka upp eitt lag, Sameiginlegt, sem Þorvaldur Bjarni samdi, Andrea Gylfadóttir söng, Eyþór lék á selló og Skúli Sverrisson á bassa. Steinar Berg hreifst af upptökunum og bauð þeim að taka upp heila plötu. Þeir höfðu aldrei spilað saman sem hljómsveit þegar platan kom út, en viðtökurnar voru svo góðar að ekki varð aftur snúið. Næsta skref var að koma tónlistinni á svið og þar biðu þeirra óvenjulegar aðstæður. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir í Íslensku óperunni í Gamla bíói, þrátt fyrir að hljómsveitin hefði aldrei æft lögin saman sem tónleikaprógramm. „Við byrjuðum bara á að vinna í stúdíói,“ segir Eyþór í hlaðvarpinu um upphafið.
Todmobile þróaðist fljótt í eina af vinsælustu hljómsveitum landsins. Um tíma spiluðu þau um hundrað sinnum á ári og gáfu út rúmlega eina plötu á ári. Þau fóru í tónleikaferðir um landið með hljóð- og ljósakerfi, oft við erfiðar aðstæður yfir heiðar og fjallvegi. Þegar hljómsveitin fór að spila á böllum ákváðu þau að fara sínar eigin leiðir þar líka. Í stað þess að fylgja hefðbundnu ballprógrammi blönduðu þau eigin tónlist saman við ábreiður af lögum Nirvana, Peter Gabriel og Red Hot Chili Peppers. Úr varð sérstök stemning þar sem mörkin milli tónleika og dansleiks urðu óljós. „Þetta voru meira tónleikar heldur en bara ball,“ segir Eyþór og lýsir því hvernig ákveðinn seiður myndaðist í kringum tónlistina.
Á sama tíma og Todmobile var á fullu starfaði Eyþór við upptökur og pródúseringu fyrir aðra tónlistarmenn. Hann tók meðal annars upp fyrstu tvær plötur Jet Black Joe og vann með Unun, auk þess að semja tónlist fyrir leikhús, kvikmyndir og auglýsingar. Eitt af því sem einkenndi vinnubrögð hans í stúdíóinu var að reyna að finna sérstöðu hvers listamanns í stað þess að þröngva eigin stíl upp á aðra.
Þegar hann vann með Jet Black Joe vildi hann halda í hrátt og afturhvarfssækið rokkhljóð sveitarinnar og nálgaðist upptökurnar með aðferðum sem minntu frekar á lok sjöunda áratugarins en tíðaranda tíunda áratugarins. „Það sem ég sá varðandi Jet Black Joe var bara að reyna að finna hvað er Jet Black Joe. Það er að segja, ekki breyta þeim í eitthvað sem ég er heldur að breyta þeim í það sem þeir eru,“ segir hann. Hann líkir þessu við garðyrkju: maður getur ekki breytt tómataplöntu í bananaplöntu, en maður getur hlúð vel að hvorri um sig.
Á þessum árum vann hann einnig að verkefnum með þáverandi eiginkonu sinni, Móeiði Júníusdóttur, Móu. Þau kölluðu fyrsta samstarfsverkefnið Bang. Tónlistin var tekin upp meðal annars í London og plata þeirra kom út hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Tommy Boy. Þau unnu með þekktum breskum pródúsentum, meðal annars Todd Terry, og upplifðu spennandi tímabil í alþjóðlegu tónlistarlífi. Eftir þessi verkefni færðist Eyþór hins vegar í annan farveg og vann um tíma við stafræna tækni, hljóðvinnslu og þrívíddarverkefni.
Alltaf sama sellóið
Tónlistin hvarf þó aldrei alveg. Eyþór hætti í Todmobile um miðjan tíunda áratuginn og var í raun frá tónlist í um tíu ár áður en hljómsveitin kom saman á ný árið 2003. Endurkoman var stórbrotin, þegar Todmobile lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann var þá ekki einu sinni viss um hvort hann gæti sungið aftur eftir svo langt hlé. „Ég hafði bara ekkert sungið í tíu ár,“ segir hann í Popparasögum.
Tónleikarnir urðu þó ævintýri og markaði samstarfið við Sinfóníuna ákveðna nýja vídd í tónlist Todmobile. Sú nálgun, að blanda saman rokki, poppi og sinfónískum hljóðfærum, hefur síðan orðið æ algengari en Eyþór telur að hún hafi fallið sérstaklega vel að tónlist sveitarinnar. Todmobile hlaut fyrr á árinu heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna og heldur áfram að koma á óvart með nýjum útfærslum og samstarfi.
Á sama tíma hefur Tappi Tíkarrass komið saman á ný. Þar segir Eyþór að vináttan sé ekki síður mikilvæg en tónlistin sjálf. Meðlimirnir séu gamlir vinir sem hafi þekkst frá barnsaldri og upplifað saman mótunarárin á unglingsaldri. Þeir hafi ekki aðeins rifjað upp gömul lög heldur einnig samið nýtt efni. Honum finnst gömlu lögin hafa elst vel og segir ánægjulegt að geta farið aftur inn í þennan heim án þess að þurfa að þykjast vera eitthvað annað en þeir voru. „Þetta er bara svona eins og að fara í gott bað,“ segir hann um það að leika aftur tónlistina frá þessum árum.
Gömul þjóðlög í nýjum búningi
Þótt Eyþór sé enn á sviðinu með gömlu félögunum er hugurinn ekki fastur í fortíðinni. Síðustu ár hefur hann fyrst og fremst einbeitt sér að instrumental tónlist þar sem hann leikur á mörg selló og byggir upp heila hljóðheima með hljóðfærinu. Sú vinna hófst að hluta til í COVID-faraldrinum þegar hann var heima með sellóið og fór að taka upp margar raddir sjálfur. Hann hefur meðal annars flutt þessa tónlist, verk sem kallast The Busy Child, á Iceland Airwaves og unnið með strengjasveitum og píanói.
Sellóið hefur fylgt honum lengi, en hann byrjaði ekki að læra á það fyrr en 16 ára gamall eftir að hann hætti í rokkinu með Tappa Tíkarrassi á sínum tíma. Sama sellóið, smíðað í Tékkóslóvakíu árið 1968, hefur fylgt honum í gegnum árin. Hann hefur meðal annars tengt það við magnara og spilað á það standandi, eins og um gítar væri að ræða. Að hans mati eru möguleikar hljóðfærisins nánast ótæmandi, enda getur það spannað allt frá djúpum bassatónum upp í háar laglínur.
Næsta verkefni hans tengist íslenskum þjóðlögum sem hann hefur unnið nýjar instrumental útgáfur af. Hann segir mörg þeirra búa yfir hjartaskerandi og dökkum textum, meðal annars um börn sem deyja eða eru borin út. Í nýju útgáfunum reynir hann að nálgast innihald textanna með sellóinu einu saman. Stefnt er að útgáfu verksins á næsta ári. Hann ætlar því áfram að kanna hvað hægt sé að gera með hljóðfærinu og finna nýjar leiðir til að miðla tónlist.
Sú leit að endurnýjun virðist raunar vera einn sterkasti þráðurinn í ferli Eyþórs. Hann hefur farið á milli ólíkra tónlistarheima, tekið sér hlé og snúið aftur, en alltaf leitað nýrra flata í sköpuninni. „Ég er alltaf fyrir framtíðina, að gera eitthvað nýtt eða gera eitthvað nýtt við það gamla,“ segir hann.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗