„Litli bróðir minn er á lífi“

Jökull ÞH299 á siglingu. Mynd úr safni.

Jökull ÞH299 á siglingu. Mynd úr safni. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

„Litli bróðir minn er á lífi.“

Þannig hefst færsla Evu Margrétar Ásmundsdóttur sem þakkar Landhelgisgæslunni og öllum þeim sem komu að björguninni í gærkvöldi þegar Jökull ÞH sökk um 100 kílómetra frá landi. 

Þrír fórust í slysinu en 17 voru í áhöfninni. Landhelgisgæslan vann að björguninni ásamt sjóbjörgunarsveitum og skipverjum annarra veiðiskipa að lífsbjörginni við krefjandi aðstæður.

Hún segir léttinn sem fylgdi fregnunum af björgun bróður síns hafa verið ólýsanlegan.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Evu.

Eitt augnablik geti breytt lífi manns að eilífu

„Bróðir minn var um borð í Jökli ÞH sem sökk í gær. Í margar klukkustundir vissum við ekki hvort hann væri lífs eða liðinn. Það er erfitt að lýsa þeirri tilfinningu að bíða eftir fréttum sem geta á einu augnabliki breytt lífi manns að eilífu,“ segir Eva í færslunni. 

„Við héldum fast í vonina, en eftir því sem tíminn leið og alvarleiki aðstæðnanna varð okkur ljósari, fór hugurinn ósjálfrátt að búa sig undir það sem hjartað neitaði að sætta sig við.

Á þessum löngu klukkustundum hugsaði ég um litla strákinn sem ég á svo ótal margar minningar með og hversu stolt ég er af manninum sem hann er orðinn.“

Eva segir að hún hafi hugsað mikið til mágkonu sinnar og tveggja barna hennar og bróðursins. 

„Að hann sé á lífi í dag eigum við að þakka hugrekki fólks sem lagði eigið öryggi að veði til að bjarga lífi annarra.“

Evar segir orð vera fátækleg þegar kemur að því að þakka þeim sem færðu henni bróður sinn aftur.

„Fyrir það verð ég ævinlega þakklát.“

Djúp sorg

Eva lýsir yfir djúpri sorg jafnhliða léttinum. Þrír sjómenn hafi ekki snúið aftur.

„Á meðan við fengum fréttirnar sem við höfðum vonað svo innilega að fá, varð það sem við óttuðumst mest að veruleika annarra fjölskyldna.“

Hún segir hug sinn vera hjá fjölskyldum mannanna, vinum þeirra og ástvinum. 

„Atburðir gærdagsins eru sár áminning um hversu dýrmætt lífið er og hversu lítið í því er sjálfgefið.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab