Kristersson fær stuðning úr óvæntri átt
Elisabeth Thand Ringqvist, formaður sænska Miðflokksins, hefur ákveðið að styðja Ulf Kristersson, formann Moderaterna og starfandi forsætisráðherra, til áframhaldandi setu í embætti.
Kristersson færist þar með einu skrefi nær því að mynda nýja ríkisstjórn.
Forysta Miðflokksins á þó eftir að leggja blessun sína yfir ákvörðunina. Búist er við niðurstöðu á næstu dögum.
Gengið erfiðlega að mynda stjórn
Fyrir tæpum tveimur vikum valdi Miðflokkurinn tillögu Sósíaldemókrata um nýja ríkisstjórn fram yfir tillögu Moderaterna. Flokkurinn hefur nú skipt um skoðun.
Rúmir tveir mánuðir eru liðnir frá því að Svíar gengu að kjörborðinu og enn hafa stjórnarmyndunarþreifingar ekki borið árangur.
Stjórnarandstöðuflokkarnir á mið- og vinstri væng fengu 176 þingsæti í kosningunum en hægri flokkarnir og Svíþjóðardemókratar 173.
Kosið á mánudaginn
Sænska þingið greiðir atkvæði á mánudag, 30. nóvember, um hvort Kristersson verði forsætisráðherra næstu fjögur árin.
Kristersson myndi fara fyrir minnihlutastjórn Moderaterna, Miðflokksins, Frjálslynda flokksins og Kristilegra demókrata.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗