Framarar á miklu skriði
Viktor Sigurðsson var markahæstur hjá Fram þegar liðið heimsótti Þór í 12. umferð úrvalsdeildar karla í handbolta á Akureyri í kvöld.
Leiknum lauk með öruggum sigri Framara, 34:27, en Viktor skoraði sjö mörk úr níu skotum.
Þetta var þriðji sigur Framara í röð í deildinni en liðið er með 12 stig í 6. sætinu. Þórsarar eru í því tíunda og þriðja neðsta með 6 stig en Þór hefur tapað fimm leikjum í röð.
Arnór Máni Daðason átti frábæran leik í marki Framara, varði 17 skot og var með 40 prósent markvörslu en þeir William Skovsager og Bertram Simonsen voru markahæstir hjá Þór með fimm mörk hvor.
Mörk Þórs: William Skovsager 5, Bertram Simonsen 5, Hafþór Már Vignisson 4, Mikkel Bak Scheumann Jensen 4, Oddur Gretarsson 2, Jóhann Geir Sævarsson 2, Hákon Ingi Halldórsson 1, Sigurður Ringsted Sigurðsson 1, Lárus Breki Gærdbo Ágústsson 1, Gunnar Bragi Reimarsson 1, Brynjar Hólm Grétarsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 12.
Mörk Fram: Viktor Sigurðsson 7, Marel Baldvinsson 6, Ívar Logi Styrmisson 5, Max Emil Stenlund 4, Dagur Fannar Möller 4, Haukur Ingi Hauksson 3, Kjartan Þór Júlíusson 1, Theodór Sigurðsson 1, Arnar Snær Magnússon 1, Sigurður Bjarki Jónsson 1, Kristján Pétur Barðason 1.
Varin skot: Arnór Máni Daðason 17.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗