Skoraði ellefu mörk í stórsigri

Dagur Gautason sækir að HK-ingum í kvöld.

Dagur Gautason sækir að HK-ingum í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni

Dagur Árni Heimisson átti stórleik fyrir KA þegar liðið tók á móti HK í 12. umferð úrvalsdeildar karla í handbolta á Akureyri í kvöld.

Leiknum lauk með ellefu marka sigri KA, 36:25, en Dagur Árni gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk í leiknum.

KA er komið í annað sæti deildarinnar og er með 18 stig en þetta var þriðji sigurleikur liðsins í röð í deildinni. HK er hins vegar með 6 stig í ellefta og næstneðsta sætinu, stigi frá öruggu sæti.

Ágúst Elí Björgvinsson gerði sér lítið fyrir og varði 20 skot í marki KA en hann var með 45 prósent markvörslu.

Kári Tómas Hauksson og Alex Máni Oddnýjarson voru markahæstir hjá HK með sjö mörk hvor.

Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 11, Andri Freyr Friðriksson 6, Dagur Gautason 5, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 5, Jens Bragi Bergþórsson 2, Morten Linder 2, Daði Jónsson 2, Einar Birgir Stefánsson 1, Patrekur Stefánsson 1, Arnór Ísak Haddsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 20.

Mörk HK: Kári Tómas Hauksson 7, Alex Máni Oddnýjarson 7, Örn Alexandersson 3, Tryggvi Hávardsson 3, Andri Þór Helgason 3, Gunnar Dan Hlynsson 1, Tómas Sigurðarson 1.

Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 16, Patrekur Guðni Þorbergsson 2.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab