Gaf mönnunum von og trú

„Á mínum ferli hef ég aldrei upplifað þetta. Að við heyrðum í þeim inn á milli og gátum verið í sambandi við þá var eiginlega hálfótrúlegt vegna þess að þetta er bara lítil handtalstöð,“ segir Viggó M. Sigurðsson verkefnastjóri á aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar.

Viggó stýrði björgunaraðgerðum þegar línuskipið Jökull ÞH 299 sökk um 60 sjómílur austur af Glettingi á miðvikudag. Hann er gestur í þætti Dagmála sem fer í loftið á mbl.is í fyrramálið.

Aðeins um 20 mínútur liðu frá því að tilkynning barst um leka í skipinu þar til skipverjarnir voru komnir í sjóinn. Þeim tókst ekki að komast í björgunarbáta skipsins en bundu sig saman í tvo hópa. Þrátt fyrir myrkur, hvassviðri og þungan sjó tókst áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar að bjarga 14 skipverjum eftir að hafa verið við hífingar í tæpar tvær klukkustundir. Þrír skipverjar fórust.

Þátturinn verður öllum opinn að þessu sinni.

Viggó M. Sigurðsson verkefnastjóri á aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar ræðir við Andreu Sigurðardóttur um björgunaraðgerðir gærkvöldsins. mbl.is/María Matthíasdóttir

Talstöðin sem öllu breytti

Á fyrstu stigum björgunaraðgerðanna bjuggu menn sig undir að samband við skipverjana myndi rofna þegar þeir yfirgæfu skipið. Svo bar hins vegar við að skipstjórinn hafði gripið með sér litla handtalstöð og með henni tókst að halda uppi samskiptum við mennina í sjónum.

Viggó segir það ekki aðeins hafa gert Landhelgisgæslunni kleift að fylgjast með ástandi mannanna heldur hafi samskiptin einnig verið mikilvæg fyrir skipverjana sjálfa.

„Við getum komið upplýsingum til þeirra um hvar við erum stödd í ferlinu, sem gefur þeim von og trú og eykur í raun og veru þol þeirra, vil ég trúa.“

Heyrðu andlegan styrk þeirra aukast

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, lýsti því á blaðamannafundi í kjölfar slyssins hvernig talstöðin gerði viðbragðsaðilum kleift að hreinlega tala lífi í mennina í sjónum. Viggó tekur undir að þar hafi miklu munað.

Þegar flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, kom á vettvang voru þrjár klukkustundir liðnar frá því að skipverjarnir fóru í sjóinn og enn langt í að björgun upp úr sjónum hæfist.

„Það er langur tími á þessum stað eftir að missa skipið undan sér,“ segir Viggó.

„Það að einingin okkar, Sif, hafi getað talað við þá – þú heyrir það hvernig andlegur styrkur mannanna eykst. Það gaf rosalega mikið.“

Í Dagmálum fer Viggó ítarlega yfir framvindu björgunaraðgerðanna, þær erfiðu ákvarðanir sem taka þurfti og hvað réð úrslitum um að svo mörgum skipverjum var bjargað.

Þá lýsir hann þeim blendnu tilfinningum sem fylgja því að vinna slíkt björgunarafrek þegar jafnframt hefur orðið manntjón.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab