„Meðan fólkið var í sjónum var fólk frá Almannavörnum að tala við þau, það var verið að gefa þeim von“

Sjóskaði varð í gærkvöldi þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk 60 sjómílum austur af Glettingi. Skipið var sokkið aðeins 19 mínútum eftir að neyðarkall barst frá skipstjóra og fór öll áhöfnin í sjóinn í flotgöllum. Fjórtán var bjargað á lífi en þrír fórust. 

Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, segir í samtali við síðdegisútvarp Rásar 2 að nú takist á sorg vegna þeirra sem fórust og þakklæti fyrir þá sem lifðu. Hún telur að þjóðin hafi sameinast í bæn í gærkvöldi, óháð því hvert fólk beindi bænunum eða til hvers. Það sem stendur upp úr fyrir henni er vonin. 

„Það stendur upp úr hjá mér þegar ég heyrði að meðan fólkið var í sjónum var fólk frá Almannavörnum að tala við þau, það var verið að gefa þeim von og halda í þeim lífinu með því að segja að von væri á hjálp. Vonin er svo mikilvæg og hún ein og sér getur haldið í okkur lífinu.“

Sigmaðurinn á TF-Gró, Elvar Már Sigurðsson, sótti sextán af sautján skipverjunum í gær. Hann lýsir því í samtali við mbl.is að hann hafi verið stressaður en það hafi veitt honum styrkinn til að klára verkefnið. Skipverjar hafi gert allt rétt með því að binda sig saman. Öldurót og óveður gerðu að verkum að ekki var hægt að eiga hefðbundin samskipti við áhöfnina en skipverjar notuðu handabandingar til að beina Elvari að þeim sem bráðast var að hífa upp. Hann hafi ekki hugsað um annað í gærkvöldi en að klára verkefnið. Hann hafi ekki fengið ráðrúm til að horfa á þetta sem afrek fyrr en fyrst síðdegis í dag.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab