Eiginkona hins þekkta manns virðist staðfesta slúðrið - „Að halda fram hjá óléttri konu er illska á allt öðru stigi“

Anika Neuer, eiginkona Manuel Neuer, markvarðar Bayern München, hefur vakið mikla athygli með færslu sinni á samfélagsmiðlum í kjölfar frétta af sambandsslitum þeirra.

Þýskir fjölmiðlar greindu frá því fyrr í mánuðinum að hjónin hefðu slitið samvistum í október eftir tæplega þriggja ára hjónaband.

Samkvæmt frétt þýska fjölmiðilsins RTL er Neuer fluttur út af heimili þeirra við Tegernsee í Þýskalandi.

Fréttirnar komu nokkuð á óvart enda eignuðust hjónin sitt annað barn í lok ágúst.

Anika deildi á dögunum færslu á Instagram þar sem fram kom eftirfarandi:

„Að halda fram hjá óléttri konu er illska á allt öðru stigi.“

Færslan hefur vakið mikla athygli í Þýskalandi en fjölmiðlar þar í landi hafa greint frá því að Neuer hafi sést í fylgd annarrar konu í Brasilíu þar sem hann var við endurhæfingu. Þá eru þau einnig sögð hafa eytt tíma saman á Sikiley í september.

Ekkert hefur þó verið staðfest varðandi meint framhjáhald og nefndi Anika eiginmann sinn ekki á nafn í færslunni.

Neuer, sem er fertugur, og Anika, sem er 26 ára gömul, byrjuðu saman árið 2020 og gengu í hjónaband í nóvember 2023.

Anika er sjálf íþróttakona en hún hefur meðal annars leikið handbolta með ESV Regensburg í heimalandinu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab