Rúmlega tvö hundruð seldar á árinu
Sala íbúða í Hlíðarhorni hefur glæðst í ár eftir mjög hæga sölu í upphafi. Framkvæmdir utanhúss eru langt komnar. mbl.is/Baldur
Rúmlega 200 íbúðir hafa selst á þéttingarreitum nærri miðborg Reykjavíkur frá síðustu áramótum.
Þetta má ráða af söluvefjum viðkomandi þéttingarreita – sjá graf – en þar sem kaupsamningar hafa í sumum tilfellum ekki verið þinglýstir er óvíst að einstaklingar hafi keypt allar íbúðirnar. Ekki ólíklegt að leigufélög og skyldir aðilar hafi eignast íbúðir.
Allar íbúðir eru nú seldar í Borgartúni 24 en salan hófst haustið 2023. Ein íbúð er óseld af 34 í Skipholti 1 en þær fóru líka í sölu haustið 2023.
Þrjár íbúðir af 38 eru óseldar í Þverholti 13 en þær komu í sölu 2024. Óseldu íbúðirnar snúa til austurs eða að baklóð. Samkvæmt talningu Morgunblaðsins um síðustu áramót höfðu selst átta íbúðir í húsinu árið 2025 en íbúðir í húsinu seldust hratt framan af.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗