Uppáhaldssmákökur sendiherrans

Nína Björk Jónsdóttir, sendiherra Íslands í Helsinki, heldur upp á engifersmákökurnar hennar ömmu Nínu. Hún deilir hér gamalli fjölskylduuppskrift sem lesendur geta spreytt sig á í jólabakstrinum. Samsett mynd

Nína Björk Jónsdóttir, sendiherra Íslands í Helsinki, á uppáhaldssmákökuuppskrift. Hún kemur frá ömmu hennar, Nínu Thyri Þórðardóttur. Nína Björk deildi uppskriftinni með lesendum. 

Hver er eftirlætissmákakan þín?

„Engifersmákökurnar hennar ömmu Nínu (Nína Thyra Þórðardóttir) eru í eftirlæti,“ segir Nína Björk.

Hún féllst á að gefa uppskriftina, sem er afar gömul:

Engifersmákökurnar hennar ömmu Nínu 

Engifer, kanill og negull gefa smákökunum hennar ömmu Nínu jólalegt kryddbragð. Deigið er geymt í kæli yfir nótt áður en kökurnar eru mótaðar og bakaðar. Ljósmynd/Aðsend

  • 500 g hveiti
  • 500 g dökkur púðursykur
  • 250 g smjör
  • 2 egg
  • 9 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. matarsódi
  • 2 tsk. engifer
  • 1 tsk. kanill
  • ½ tsk. negull

Aðferð: 

  1. Hnoðið vel saman og síðan í eina bollu.
  2. Geymt yfir nótt í ísskáp.
  3. Rúllið út lengjur og skerið í litla bita.
  4. Bitarnir eru rúllaðir í kúlur og þær settar inn í heitan ofn, 200-225°C, í nokkrar mínútur, það þarf að fylgjast með.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab