„Eitt það erfiðasta sem ég hef nokkurn tímann gert“
Leikarahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors reyndu á þolmörk sín á Kilimanjaro á dögunum. Skjáskot/Facebook
Leikarahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors lögðu á dögunum land undir fót og héldu í ævintýraferð til Tansaníu þar sem þau freistuðu þess að komast á topp Kilimanjaro, hæsta fjalls Afríku.
Unnur Ösp segir frá ferðalaginu á samfélagsmiðlum og lýsir því sem umbreytandi lífsreynslu sem hafi reynt á hana bæði líkamlega og andlega.
„Framandi, ævintýralegt, spennandi, stórkostlegt, áskorun sem sprengir alla þægindaramma lífsins,“ skrifar leikkonan.
Unnur Ösp komst í 4.600 metra hæð áður en hæðaveiki varð til þess að hún þurfti að snúa við. Eiginmaður hennar hélt hins vegar alla leið á tindinn.
„Það var soldið grátið, meira hlegið“
Leikkonan kveðst bera mikla virðingu fyrir fjallgöngufólki eftir ferðalagið en í för með hjónunum voru meðal annars nokkrir sem höfðu áður gengið á Everest.
„Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef nokkurn tímann gert. Á fjalli kynnist maður kjarna fólks, í þunnu loftinu. Mætum náttúrunni saman. Allar varnir bresta. Það er stutt á milli okkar. Maður mætir sjálfum sér. Erfiðar, efast, upplifir, hræðist.“
Þrátt fyrir erfiðleikana voru töfrandi augnablikin ekki langt undan. Unnur Ösp lýsir því hvernig stjörnurnar birtust á kvöldin og aparnir sungu í regnskógunum og hoppuðu yfir tjöldum ferðalanganna.
„Það var soldið grátið, meira hlegið.“
Stoltið leynir sér ekki í skrifum hennar enda ferðalagið eftirminnilegt fyrir margra hluta sakir.
„Stolt, þakklát, meyr, þreytt, hissa, allt önnur. Umbreytandi lífsreynsla með yndislegu fólki. Minn toppur.“ skrifar Unnur Ösp að lokum.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/59/1695928.jpg)
