„Gefið ljóð og lýðið á“

Þórdís Gerður Jónsdóttir mátar sellóið við djassinn.

Þórdís Gerður Jónsdóttir mátar sellóið við djassinn. Ljósmynd/Therese Precht Vadum

Færeyingar köstuðu h-inu fyrir róða fyrir alllöngu og fyrirsögnin hér, á færeysku, útleggst sem „gefið hljóð og hlýðið á“. Og það er það sem ég er að gera núna í stofunni minni á sunnudegi, ég er að hlýða á plötu Þórdísar Gerðar Jónsdóttur sem hefur með það að gera að umbreyta ljóðum í hljóð. Eða, svo við gerumst nákvæmari, að knýja hljóð úr ljóðum, eins og titillinn segir til um.

Á bakhlið plötunnar segir höfundur: „Innblástur lagasmíðanna kom úr íslenskum ljóðum, ekki þannig að samin var laglína við texta ljóðanna – heldur var stemning hvers ljóðs, eins og hún birtist tónskáldinu, fönguð og framlengd í lag.“ Og þau ljóðskáld sem höndlað er svo um eru þau Davíð Stefánsson („Þú komst í hlaðið“, „Nú sefur jörðin“), Ragnar Helgi Ólafsson („Allir / Allar / Allt“), Gerður Kristný („Þessi ást, þessi ást“), Steinn Steinarr („Malbik“), Ásta Sigurðardóttir („Spilin“), Robert Johnsson („Have You Seen The Bright Lily Grow“, lag) og Steingrímur Thorsteinsson („Trúðu á tvennt í heimi“).

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab