Fjölskylda skipstjórans sendir þakkarkveðju

Fjölskylda Kristins Hrannars, skipstjóra á Jökli, vill koma á framfæri þakklæti til viðbragðsaðila. Ljósmynd/GPG Seafood

Fjölskylda Kristins Hrannars Hjaltasonar, skipstjóra á Jökli ÞH, hefur sent frá sér þakkarkveðju til allra þeirra sem komu að björgunaraðgerðunum þegar skipið sökk úti fyrir Austurlandi. Fjölskyldan þakkar viðbragðsaðilum fyrir hugrekki, fagmennsku og æðruleysi við afar erfiðar aðstæður.

„Í kjölfar hins hörmulega sjóslyss þegar Jökull ÞH sökk viljum við, fjölskylda skipstjórans, koma á framfæri okkar innilegasta þakklæti til allra þeirra sem komu að björgunaraðgerðunum,“ segir í kveðjunni.

Fjölskyldan færir Landhelgisgæslunni, áhöfn þyrlunnar, áhöfnum björgunarskipa, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Neyðarlínunni, lögreglu, heilbrigðisstarfsfólki og öðrum viðbragðsaðilum sérstakar þakkir.

„Þið stóðuð frammi fyrir ótrúlega erfiðum aðstæðum, myrkri, miklum sjó og slæmu veðri, en sýnduð ótrúlegt hugrekki, fagmennsku, æðruleysi og samstöðu.“

Erfitt að finna orð yfir þakklætið

Fjölskyldan segir erfitt að koma því í orð hversu mikið starf viðbragðsaðilanna hafi þýtt fyrir hana.

„Það er erfitt að finna orð sem ná utan um það þakklæti sem við berum í hjörtum okkar. Fyrir okkur sem fjölskyldu verður aldrei hægt að fullþakka það sem þið gerðuð.“

Fjölskyldan vottar jafnframt aðstandendum þeirra sem fórust í slysinu samúð sína.

„Við sendum jafnframt fjölskyldum þeirra sem létust okkar dýpstu samúð og hugur okkar er hjá þeim á þessum erfiðu tímum.“

Í lok kveðjunnar ítrekar fjölskyldan þakklæti sitt til allra þeirra sem komu að björguninni.

„Til allra ykkar sem komuð að björguninni: Takk fyrir hugrekkið, fórnfýsina, mannúðina og ómetanlegt starf. Þið eigið alla okkar virðingu og ævarandi þakklæti.“

Kveðjan er undirrituð af Hjalta Kristinssyni, föður Kristins. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab