Eldur kviknaði í fólksbifreiðinni við áreksturinn

Eldur kviknaði í fólksbifreiðinni sem lenti í árekstri við vörubifreið á Suðurstrandarvegi fyrr í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Lögreglunni á Suðurnesjum hafi borist tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandarvegi klukkan 16:14. Fjölmennt lið viðbragðsaðila frá lögreglunni á Suðurnesjum, Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur hafi farið á vettvang. Strax hafi orðið ljóst á vettvangi að slysið væri alvarlegt en við áreksturinn kviknaði í fólksbifreiðinni.

Rannsóknardeild embættisins vinni enn að vettvangsrannsókn í samstarfi við tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hafi einnig komið á vettvang.

Suðurstrandarvegur sé enn lokaður. Ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab