Fjórðungur launa kemur úr fiskeldi
Fjórðungur allra launagreiðslna í Vesturbyggð kemur úr fiskeldi, en á Vestfjörðum í heild kemur tíunda hver króna greiddra launa úr greininni. Þá eru ótalin afleidd störf.
Þetta kemur fram í greiningu Framfarafélags Vestfjarða (Framvest) á ótrúlegum vexti í fiskeldi fyrir vestan, en á sama tíma hefur Vestfirðingum tekið að fjölga á ný.
„Á bak við þessar tölur eru ekki bara störf og milljarðar króna, heldur hundruð vestfirskra fjölskyldna sem geta séð fyrir sér og sínum, alið upp börnin sín og byggt framtíð sína í heimabyggð,“ segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis og talsmaður Framvest.
Gríðarleg fjárfesting hefur fylgt fiskeldinu, en afkoman er ótraust. Fertram gagnrýnir mikla sértæka gjaldtöku þrátt fyrir taprekstur og við því þurfi að bregðast.
„Það er ekki hlutverk stjórnvalda að tryggja fyrirtækjunum hagnað, heldur skapa forsendur fyrir arðbærum rekstri og áframhaldandi atvinnuuppbyggingu.“
Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗