Vill fá afsökunarbeiðni frá Ferguson 30 árum síðar
Goðsagnakenndi knattspyrnulýsandinn Martin Tyler hefur greint frá því að Sir Alex Ferguson hafi í 30 ár talið hann bera ábyrgð á því að upplýsingar um leikskipulag Manchester United hafi lekið til mótherja.
Atvikið átti sér stað fyrir leik United gegn Sunderland í enska bikarnum árið 1996.
Ferguson hafði í trúnaði greint Tyler frá breyttu leikskipulagi United en þegar lýsandinn mætti á leikvanginn kom í ljós að Peter Reid, stjóri Sunderland, vissi þegar af breytingunum.
Ferguson kenndi Tyler um lekann en sá síðarnefndi segist vita hver bar ábyrgð á honum.
„Það var ekki ég sem lak upplýsingunum en ég held að hann myndi enn kenna mér um,“ sagði Tyler í samtali við SBS Sport.
„Það var leikmaður sem lak þeim en ég vil ekki koma upp um hann, jafnvel þótt það gæti hreinsað mannorð mitt.“
„Það eru liðin 30 ár og ég hef enn ekki fengið uppreisn æru. Ég held að það sé kominn tími á að hann biðjist afsökunar.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗