Opnar sig um erfiða sambúð með grínistanum vinsæla: „Ég grét á hverjum degi“
Fyrrverandi sambýliskona bandaríska grínistans Shane Gillis, Grace Brassel, hefur opnað sig upp á gátt um samband þeirra. Þau hafi flutt saman í einbýlishús og það hafi svo runnið upp fyrir henni að hún ætti að vera í raun heimavinnandi húsmóðir sem ætti að passa upp á að heimilið væri hreint, elda fyrir hann mat og þvo þvottinn. Hún hafi á tímabili farið að finna fyrir þunglyndiseinkennum.
Shane hefur vakið mikla athygli en hefur einnig fengið á sig mikla gagnrýni, nú síðast fyrir brandara í Saturday Night Live um að konur „klæðist eins og hórur í ræktinni“. Var sá brandari meðal annars ræddur í pistli Hrafnhildar Kjerúlf Sigmarsdóttur í Heimildinni.
Grace segir í ítarlegri lýsingu á vefnum The Cut að sambandið hafi byrjað vel og var það í raun eitt samfleytt partí.
„Ég tók fljótlega eftir því að líf Shane var gjörsneytt allri reglu. Hann svaf fram eftir, spilaði tölvuleiki og drakk á hverju kvöldi. Ég er með ADHD, sem ég hef alltaf skammast mín fyrir, og hef þurft að leggja hart að mér til að halda reglu á lífi mínu. Þarna var hins vegar maður sem naut mikillar velgengni þrátt fyrir að lifa eins og strákur í bandarísku háskólabræðralagi. Á þeim tíma fannst mér það í alvöru flott hjá honum,“ lýsir Grace.
Þau hafi flutt inn saman og fljótt hafi lífið hennar breyst í að vera húsmóðir.
„Um fimm mánuðum eftir að sambandið hófst fór fólk að hafa áhyggjur af mér. Ég var ein heima allan daginn á meðan Shane var við tökur og átti hvorki vini né fjölskyldu í nágrenninu. Ég fór að þyngjast vegna allrar drykkjunnar og litaði ljósa hárið mitt brúnt í af því bara. Vinir mínir spurðu í gríni hvort ég væri að upplifa geðrof. Ég hafði ekkert gott svar við því.“
Hún hafi svo tekið eftir því að hann fór að verða illgjarn.
„Ég heyrði hann kalla aðrar konur hórur og fór því að klæða mig í íhaldssamari fatnað. Honum fannst ég ekki gera nóg á heimilinu og fól mér að halda stórt hrekkjavökupartí svo ég myndi „taka til hendinni“,“ segir hún.
„Ég grét á hverjum degi. Ég hringdi grátandi í mömmu og sagði henni að ég vissi ekki hvort þetta líf væri fyrir mig. Sex mánaða ókeypis prufutímabilinu með hinum ljúfa Shane Gillis var lokið og komið að skuldadögum.“
Sambandi þeirra lauk svo sumarið 2025 þegar hún fór í gegnum skilaboðin í símanum hans og fann skilaboð milli Shane og konu sem hann hafi talað við í nokkra mánuði. Í einum skilaboðanna sagðist hann hafa séð eftir því að hafa ekki sængað hjá henni.
Page Six fékk viðbrögð frá Shane sem voru í styttri kantinum en þar segir einfaldlega:
„Við Grace áttum góðar stundir saman. Sambandsslit eru erfið og ég óska henni alls hins besta.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗