Frækinn sigur Íslands í Malmö

Thea Imani Sturludóttir fór á kostum í dag.

Thea Imani Sturludóttir fór á kostum í dag. AFP

Thea Imani Sturludóttir var hetja íslenska kvennalandsliðsins í handbolta þegar liðið lagði Svíþjóð í vináttulandsleik í Malmö í dag.

Leiknum lauk með naumum sigri Íslands, 29:28, en Thea gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk í leiknum.

Íslenska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og náði fimm marka forskoti um miðjan fyrri hálfleikinn, 12:7. Íslenska liðið var sterkara það sem eftir lifði hálfleiksins og leiddi 16:12 í hálfleik.

Svíar byrjuðu af krafti

Svíar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og tókst að minnka forskot íslenska liðsins í eitt mark, 17:16, eftir sjö mínútna leik. Svíar komust yfir, 24:23, þegar rúmlega tíu mínútur voru til leiksloka en Thea Imani skoraði síðustu tvö mörk leiksins og tryggði Íslandi sigur.

Sandra Erlingsdóttir skoraði sex mörk fyrir íslenska liðið og Lovísa Thompson fimm mörk. Þá varði Hafdís Renötudóttir tíu skot í markinu og var með 30 prósent markvörslu.

Liðin mætast næst á laugardaginn kemur í Halmstad en leikirnir eru lokaleikir íslenska liðsins fyrir Evrópumótið 2026 sem hefst í Rúmeníu þann 3. desember.

Mörk Íslands: Thea Imani Sturludóttir 8, Sandra Erlingsdóttir 6, Lovísa Thompson 5, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 3, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 2, Katrín Anna Ásmundsdóttir 2, Elísa Elíasdóttir 1, Elín Rósa Magnúsdóttir 1, Elín Klara Þorkelsdóttir 1.

Varin skot: Hafdís Renötudóttir 10, Sara Sif Helgadóttir 2.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab