Kýldi konu fyrirvaralaust í andlitið

Í skýrslu hjá lögreglu kvaðst konan hafa sagt manninum að hann ætti ekki að skipta sér af slagsmálunum enda mættu þau ekki taka þátt í slíkum átökum þar sem þau stunduðu bardagaíþróttir. Hún hefði síðan snúið sér við og séð vin sinn alblóðugan í framan. Þegar hún hefði aftur snúið sér að manninum hefði hann kýlt hana fyrirvaralaust í andlitið. Landsréttur þyngdi í dag refsingu manns sem sakfelldur var fyrir að kýla konu, sem hann æfði hnefaleika með, í andlitið fyrir utan skemmtistað. Taldi dómstóllinn árásina hættulega og að gögn málsins bæru ekki annað með sér en að hún hefði verið með öllu tilefnislaus.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab