Pattra og Elín Dröfn í algjöru jólaskapi
Það var hátíðleg stemning þegar starfsfólk Blue Lagoon Skin Science kom saman ásamt vinum og vandamönnum á dögunum til að fagna komu hátíðarsetta ársins. Settin eru fjögur talsins en við sama tilefni var árlegur hátíðarklútur fyrirtækisins afhjúpaður.
Vandað var til verka við samsetningu hátíðarsettanna en við val á vörunum var tekið mið af ólíkum þörfum húðarinnar, ekki síst yfir köldustu mánuði ársins.
„Við völdum vörurnar í hvert sett með ólíkar þarfir húðarinnar í huga. Í einu settinu lögðum við til dæmis áherslu á raka enda finna mörg okkar fyrir meiri þurrki í húðinni yfir vetrarmánuðina. Í öðru tókum við saman þrjár af okkar vinsælustu vörum,“ segir Hólmfríður, framkvæmdastjóri Blue Lagoon Skin Science.
Sækja innblástur í náttúruna
Undanfarin þrjú ár hafa hönnuðir fyrirtækisins hannað sérstakan hátíðarklút sem sækir innblástur í Bláa Lónið. Vinnan við hvern klút tekur um ár en að þessu sinni voru það gárurnar sem myndast á yfirborði lónsins þegar vatnsdropi fellur í það sem heilluðu hönnuðina.
„Okkur fannst fallegt að vinna með þetta litla augnablik í mynstrinu. Það gleður okkur að heyra að margir viðskiptavinir hlakki til á hverju ári að sjá nýja klútinn og vilji eignast hann hvert ár,“ segir Hólmfríður.
Vinsælar vörur í hátíðarbúningi
Í hátíðarsettunum má finna nokkrar af vinsælustu vörum fyrirtækisins sem vakið hafa athygli alþjóðlegra tískutímarita á borð við Vogue, Elle, InStyle og Allure. Þar á meðal er hinn sívinsæli kísilmaski sem hlaut nýverið verðlaun Allure, auk andlitskremsins BL+ The Cream og andlitsserumsins BL+ The Serum.
Einnig má finna rakamaska sem hægt er að hafa á húðinni yfir nótt, þörungamaska sem gefur húðinni aukinn ljóma og augnserum sem dregur úr sýnilegum þrota í kringum augun.
Kristín Halla Þórsdóttir, Íris Guðmundsdóttir, Margrét Pálmadóttir og Davíð Laufdal Arnasson. Ljósmynd/Cindy Rún Li
Hlín Ósk Þorsteinsdóttir, Einar Árni Pálsson, Hólmfríður Einarsdóttir og Sigurbjörg Gunnarsdóttir. Ljósmynd/Cindy Rún Li
Katrín Eva Björgvinsdóttir, Fanney Svala Óskarsdóttir og Elísabet Ösp Pálsdóttir. Ljósmynd/Cindy Rún Li
Kristín Halla Þórsdóttir, Álfhildur Kristjánsdóttir og Hólmfríður Einarsdóttir. Ljósmynd/Cindy Rún Li
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



















