Kýldi konu fyrirvaralaust í andlitið
Í skýrslu hjá lögreglu kvaðst konan hafa sagt manninum að hann ætti ekki að skipta sér af slagsmálunum enda mættu þau ekki taka þátt í slíkum átökum þar sem þau stunduðu bardagaíþróttir. Hún hefði síðan snúið sér við og séð vin sinn alblóðugan í framan. Þegar hún hefði aftur snúið sér að manninum hefði hann kýlt hana fyrirvaralaust í andlitið. Ljósmynd/Colourbox
Landsréttur þyngdi í dag refsingu manns sem sakfelldur var fyrir að kýla konu, sem hann æfði hnefaleika með, í andlitið fyrir utan skemmtistað. Taldi dómstóllinn árásina hættulega og að gögn málsins bæru ekki annað með sér en að hún hefði verið með öllu tilefnislaus.
Maðurinn var dæmdur í 60 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður dæmt manninn í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um að manninum bæri að greiða konunni 250 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta.
Bað hann að skipta sér ekki af slagsmálunum
Málsatvik eru rakin til 7. október árið 2022 þegar til slagsmála kom fyrir utan skemmtistað. Vinur konunnar hafði reynt að ganga á milli tveggja manna sem þar tókust á en var sjálfur sleginn í götuna og sparkað í andlit hans með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði og hlaut skurð á nefi og í augntóft.
Konan hafði farið út af skemmtistaðnum og kannaðist þar við einn mannanna enda æfðu þau hnefaleika saman.
Í skýrslu hjá lögreglu kvaðst konan hafa sagt manninum að hann ætti ekki að skipta sér af slagsmálunum enda mættu þau ekki taka þátt í slíkum átökum þar sem þau stunduðu bardagaíþróttir.
Hún hefði síðan snúið sér við og séð vin sinn alblóðugan í framan. Þegar hún hefði aftur snúið sér að manninum hefði hann kýlt hana fyrirvaralaust í andlitið.
Konan hlaut skurð á efri vör, sár innan í vinstri nös og verki í vinstri öxl auk höfuðverkjar, svima og fleiri einkenna sem bentu til heilahristings.
Sló í húdd lögreglubifreiðar
Unnusti konunnar kvaðst hafa staðið við hlið hennar þegar árásin átti sér stað. Fyrir héraðsdómi lýsti hann því hvernig maðurinn hefði stigið skref aftur á bak, snúið líkamanum og kýlt konuna. Hún hefði fallið í götuna og rotast við höggið.
Maðurinn hefði í kjölfarið hlaupið á brott. Þegar lögreglubifreið kom á vettvang hefði unnustinn slegið í húdd hennar, bent á manninn og sagt:
„Þið verðið að ná honum.“
Lögregla náði tali af manninum sem reyndist hafa farið úr axlarlið. Var hann fluttur á heilbrigðisstofnun til aðhlynningar.
Sagðist hafa reynt að skilja fólk að
Maðurinn neitaði sök og krafðist sýknu. Fyrir Landsrétti kvaðst hann einungis hafa ætlað að skilja að fólk sem átti í átökum og engan hafa skaðað.
Í frumskýrslu lögreglu kom hins vegar fram að maðurinn hefði sagst hafa verið kýldur og kýlt til baka og við það farið úr axlarlið. Síðar hélt hann því fram að hann hefði fallið til jarðar og þannig hlotið áverkann.
Landsréttur féllst á með héraðsdómi að misræmi í framburði mannsins um hvernig hann fór úr axlarlið leiddi til þess að meta yrði framburð hans ótrúverðugan.
Framburður unnustans metinn trúverðugur
Landsréttur taldi jafnframt að misræmi í framburði konunnar á rannsóknarstigi og fyrir dómi um hvort hún hefði séð hver sló hana drægi verulega úr sönnunargildi framburðar hennar að því leyti.
Framburður unnusta hennar var á hinn bóginn í heild metinn trúverðugur þrátt fyrir tengsl hans við konuna. Fékk framburður hans stoð bæði í frumskýrslu lögreglu og skýrslu annars vitnis hjá lögreglu.
Taldi Landsréttur hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði slegið konuna í andlitið og staðfesti því niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu hans.
Óútskýrðar tafir á rannsókn lögreglu
Við ákvörðun refsingar leit Landsréttur til þess að um hættulega og að því er virtist með öllu tilefnislausa árás hefði verið að ræða. Þá yrði ráðið af áverkavottorði að höfuðhöggið hefði verið þungt.
Með hliðsjón af því þótti refsing mannsins hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi. Í ljósi óútskýrðra tafa á rannsókn málsins hjá lögreglu og sakaferils mannsins þótti hins vegar rétt að fresta fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið til tveggja ára.
Tæpir 17 mánuðir liðu frá árásinni þar til lögregla tók fyrstu skýrslu af unnusta konunnar. Nú eru liðin rúm fjögur ár frá því að árásin átti sér stað.
Auk miskabótanna ber manninum að greiða málskostnað vegna bótakröfu konunnar, sakarkostnað í héraði og allan áfrýjunarkostnað málsins. Nema bætur og kostnaður samtals tæpum 2,6 milljónum króna að frátöldum vöxtum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗