Ingimar Jónsson: Bóksala sterk í ár – sérstaklega innbundnar bækur

Bóksala í haust er meiri en verið hefur undanfarin ár og bóksalar eru bjartsýnir á sölu fyrir jólin. Samkeppni á íslenskum bókamarkaði hefur aukist á undanförnum árum. Um langt skeið hafa stórmarkaðir komið inn á jólamarkaðinn og á undanförnum árum hefur Storytel veitt hefðbundnum bókum samkeppni og nýtur þess að  fá endurgreiðslur á kostnaði við framleiðslu hljóðbóka fyrir streymi. Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Þetta er gróið fyrirtæki sem margir svona tengja bókum, fyrst og fremst bókum og kannski ritföngum. Ég kem nú inn á það á eftir að það er nú talsvert meira sem er þarna undir. En byrjum á bókunum. Nú er jólabókavertíðin, hún er hafin. Og það er talað um að bóksala sé meiri í ár en, en var til dæmis í fyrra eða hittiðfyrra. Hvernig er þetta?

„Ja, hún hefur bara farið vel af stað og við sjáum náttúrlega að september og október eru bara mjög sterkir í bóksölunni hjá okkur. Sérstaklega þessar innbundnu jólabækur sem eru svona tengdar þessari gjafavertíð sem jólin eru. Þannig við erum bara mjög bjartsýn fyrir komandi vikur. En það er nú kannski rétt að minna á það að það er mikið eftir af jólabókasölunni.“

Jú, jú. Og það eru stórir dagar fram undan núna í lok nóvember.

„Við seljum mjög vel núna næstu vikuna, getum við sagt. Það vel að við verðum meira og minna alla næstu viku að tína saman pantanir.“

Já, hefur verslunin verið að færast yfir á netið að miklu leyti eða hvernig er það?

„Ekki miklu leyti hjá okkur en hún er náttúrlega vaxandi á netinu alveg klárlega. En við erum búin að vera með viðskipti á netinu mjög lengi, í tíu ár núna og það er bara stabílt og við sjáum það árið í fyrra var svipað og Covid-ið árið 2020. Það var stærsta árið, langstærsta árið þá, en við erum svona komin í þá sölu.“

Nú er það náttúrlega ekkert nýtt en alltaf þegar jólin nálgast þá fáið þið mikla samkeppni í bóksölunni þegar stórmarkaðirnir koma inn á markaðinn.

„Veistu Ólafur, við erum náttúrlega vön samkeppni, Penninn, og þú getur bara sagt, heyrðu, þú getur eiginlega fengið allar vörur sem við erum að selja bara erlendis frá nema íslensku bækurnar. Þær eru bara seldar hér en erlendar bækur og tímarit og ritföng og gjafavara ýmis konar. Ég tala nú ekki um þessi fínu húsgögn sem við erum að selja. Þetta getur þú allt í sjálfu sér pantað sjálfur og það er búið að vera þannig í 20 ár eða 30 þannig að við höfum aldrei kveinkað okkur þannig undan samkeppninni sko. Og nú koma stórmarkaðirnir inn. Ég held að bækurnar hafi verið að fara inn í Bónus þannig að þeir eru náttúrlega, og aðrir á þessum markaði, bara vel virkir eins og við vitum báðir.“

Jú, jú. En þeir fleyta rjómann, þeir taka bara það sem er líklegt til að hreyfast vel. Þið veitið miklu dýpri þjónustu þegar kemur að framboði á bókum.

„Ja, það er bara þannig að við tökum allar bækur, íslenskar bækur, sem hér eru gefnar út, við tökum þær meira og minna allar í sölu. Við erum kannski ekki að taka þær allar í allar búðir. Við tökum þær kannski inn í tvær, þrjár búðir og metum aðeins stöðuna. Og svo bara fjölgum við ef þarf á að halda. En við reynum að hafa þetta í heiðri.“

Já, já, og svo náttúrlega þegar það er hægt að fara inn í netverslun, eða vefverslun, og kaupa, þá er varan í raun og veru í boði alls staðar. Ef Penninn er með hana í einni eða tveimur eða þremur búðum, þá er hún væntanlega aðgengileg í vefversluninni.

„Já, já, meira og minna, allar bækur þangað þannig að það auðvitað leysir að hluta til málið líka?“

En það hefur komið samkeppni við, við bókina frá annars konar bókum, frá hljóðbókum, streymisveitum. Hvernig hefur það svona frá ykkar bæjardyrum séð, hvaða áhrif hefur þetta haft á markaðinn?

„Alveg klárlega heilmikil áhrif og dregið hreinlega úr bóksölu. Við höfum svona nokkurn veginn haldið okkar sölu á síðustu árum í heild, ef við tökum bara íslenskar bækur, erlendar bækur, barnabækur og tímarit og hljómplötur. Við köllum þennan flokk miðlun. Þetta er svona kringum tveggja milljarða sala á ári og hefur verið þar núna síðustu ár sko. Svipuðum stað þannig að ég er nú að vona að það bætist aðeins í þetta núna. Þannig að það er enginn vöxtur þannig lagað, vöxturinn hefur verið í hljóðbókunum, við sjáum það náttúrlega bara á tölum frá Storytel.

Og svo er þetta auðvitað allt niðurgreitt þannig að Storytel hefur fengið eitthvað á þriðja hundrað milljónir frá íslenska ríkinu til þessa, til sinnar starfsemi hérna. Við höfum svo sem haft ýmislegt út á það að setja og gert athugasemdir við það. Hefur ekki fundist það eðlilegt?“

Já, já, þeir nýta sér þessa endurgreiðslu sem útgefendum stendur til boða.

„Heldur betur hafa þeir gert það.“

Voru væntanlega stærstir?

„Nei, ég held að þeir séu það nú reyndar ekki, ég held að það hafi heldur dregið úr þessu líka af því að útgefendur eins og Forlagið og fleiri eru farnir að lesa upp sínar bækur sjálfir.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab