Ölfus reiknar með 823 milljóna afgangi

Elliði Vignisson er bæjarstjóri Ölfuss.

Elliði Vignisson er bæjarstjóri Ölfuss. Samsett mynd/mbl.is/Ófeigur Lýðsson/Sigurður Bogi

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir 2028–2030.

Áætlunin gerir ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu, miklum framkvæmdum og áframhaldandi fólksfjölgun.

Afgangur rennur til uppbyggingar

Rekstrartekjur samstæðu A- og B-hluta eru áætlaðar 6.678 milljónir króna á næsta ári og rekstrargjöld 5.304 milljónir. Gert er ráð fyrir að afgangur eftir afskriftir og fjármagnsliði verði 823 milljónir króna, sem renni allur til uppbyggingar innviða.

Fjárfestingar ársins 2027 nema 1.895 milljónum króna. Stærstu verkefnin eru stækkun grunnskóla, félagsaðstaða eldri borgara og gatnagerð.

Einnig verður fjárfest í höfninni og í vatns- og fráveitu, auk þess sem undirbúningur knattspyrnuhúss heldur áfram. Á fjórum árum er gert ráð fyrir fjárfestingum upp á samtals um 6,3 milljarða króna.

Mikil íbúafjölgun í kortunum

Leikskóli verður áfram gjaldfrjáls. Álagningarhlutfall fasteignaskatts lækkar enn frekar og hefur þá lækkað um helming á níu árum. Að sögn sveitarfélagsins er árlegur kostnaður fjölskyldu með tvö börn vegna leikskóla og frístundar um 65% undir miðgildi í samanburði sveitarfélaga.

Gert er ráð fyrir að íbúar verði um 3.300 á næsta ári og um 3.800 árið 2030, sem er tæplega 22% fjölgun frá því sem spáð er í ár.

Árið 2027 verða fjárfestingar fjármagnaðar með 1.342 milljónum króna úr rekstri og 880 milljónum í nýjum langtímalánum og öðrum fjármögnunarliðum en 333 milljónir af eldri lánum verða greiddar niður.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab