Flugstjórinn: „Áhöfnin sett í skelfilega aðstöðu“
„Við erum bara nokkuð brött, náttúrulega lúin, en með blendnar tilfinningar. Það að koma allir heim en ekki allir heilir, því miður,“ segir Jens Sigurðsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, sem stýrði þyrlunni TF-GRÓ í björgunarleiðangrinum þegar neta- og línubáturinn Jökull sökk í gærkvöldi.
Jens segir aðstæður á slysstað hafa verið afar krefjandi.
Þokubakkar voru á svæðinu þegar eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, kom á vettvang og framan af lágu takmarkaðar upplýsingar fyrir um staðsetningu skipverjanna.
„Svo birtir aðeins til“
„Svo birtir aðeins til þegar við erum að nálgast og við fáum greinargóðar upplýsingar frá skipum á staðnum sem skiptu sköpum við að teikna upp stóru myndina af slysstaðnum og hvar þessir hópar voru.“
Jens hrósar skipverjum Jökuls fyrir viðbrögð þeirra og undirbúning. Þeir höfðu fest sig saman sem auðveldaði björgunarstörf.
„Þeir vissu nákvæmlega hvað þeir áttu að gera í þessum aðstæðum. Þeir voru búnir að undirbúa sig mjög vel. Þannig að við gátum farið beint í hífinguna og hafið björgun.“
„Skelfileg aðstaða“ sem áhöfnin er sett í
Aðeins ein af þremur þyrlum Landhelgisgæslunnar var tiltæk þegar neyðarkall barst frá Jökli í gær. Jens gagnrýnir stöðuna harðlega sökum þess hve viðbragðstími reyndist langur í þessum aðstæðum.
„Þetta er náttúrulega skelfileg aðstaða sem við erum sett í sem áhöfn.“
Jens hefur starfað við þyrlubjörgun í tvo áratugi og telur að fjölga þurfi þyrlum Landhelgisgæslunnar til að tryggja viðunandi viðbúnað.
„Frá mínum bæjardyrum, sem hafandi verið í þessum bransa í tuttugu ár, þá er það alveg kýrskýrt að við þurfum fimm vélar af þessari stærðargráðu til að halda tveimur úti að öllu jöfnu.“
Hann segir að hægt hefði verið að haga björgunaraðgerðunum með öðrum hætti hefðu tvær þyrlur verið tiltækar.
„Auðvitað er þetta bara ömurlegt og tvær vélar hefðu breytt töluverðu í tíma í þessu verkefni.“
Skipverjarnir hreinlega fuku undan þyrlunni
Vindhraði á slysstað var á bilinu 25 til 35 hnútar og ölduhæð rúmir fjórir metrar. Jens segir vindinn hafa verið nokkuð stöðugan en aðstæður engu að síður gert björgunaraðgerðirnar flóknari.
„Menn eru náttúrulega bara hreinlega fjúkandi undan vélinni.“
Stöðug samskipti voru á milli Jens og flugvirkjans í hurð þyrlunnar á meðan hífingum stóð. Sífellt þurfti að leiðrétta staðsetningu þyrlunnar til að tryggja öryggi sigmannsins og skipverjanna í sjónum.
Þegar neyðin brýtur lög
Áhöfn þyrlunnar þurfti að víkja frá gildandi verklagsreglum til að halda á slysstað. Spurður hvort sú ákvörðun hafi verið erfið segir Jens svo sannarlega hafa verið.
„Þetta er alls ekkert auðveld ákvörðun. Við höfum hérna ákveðið verklag og fylgjum því í einu og öllu þangað til að neyðin brýtur lög.“
Hann segir slíkar ákvarðanir teknar í samráði við yfirmenn og áhöfn þyrlunnar.
„Þá tekur maður þetta samtal, bæði við sína yfirmenn og áhöfnina. Eru allir sáttir? Ef fólk treystir sér til að koma og treystir vélinni og aðstæðum, þá höldum við áfram og förum. Vissulega eru þetta ömurlegar aðstæður fyrir okkur sem áhöfn.“
Spurður hvort hann hafi einhvern tímann óttast um eigið öryggi eða öryggi áhafnarinnar á meðan á björgunaraðgerðunum stóð svarar Jens því neitandi.
„Nei, ég gerði það nú ekki. Ég treysti okkur hundrað prósent fyrir þessu verkefni.“
Erfið ákvörðun að skilja mennina eftir í sjónum
Á meðan á björgunaraðgerðunum stóð þurfti Jens að taka þá erfiðu ákvörðun að fljúga tímabundið frá skipverjunum til að brenna eldsneyti og létta þyrluna svo hægt væri að hífa fleiri menn um borð.
„Ég þurfti að brenna eldsneyti og létta vélina um einhver 140 kíló. Bara það eitt gerði það að verkum að við gátum híft síðustu fjóra mennina upp.“
Jens segir einnig hafa verið erfitt að biðja skip á vettvangi um að slíta tengingu við sex skipverja í sjónum.
„Það var ekki auðvelt að biðja skipið að slíta tengingu við sex manns úti á ballarhafi.“
Þá hafi reynst erfitt að þurfa að yfirgefa slysstaðinn tímabundið á meðan enn voru menn í sjónum.
„Svo tek ég upp fjóra og fer frá, skil aumingja fólkið eftir í sjónum, brenni eldsneyti og kem inn aftur. En til allrar guðs lukku þá tókst þetta og gekk ágætlega.“
Ekki hægt að undirbúa sig að fullu fyrir slíkar aðstæður
Jens hrósar áhöfn þyrlunnar fyrir frammistöðu hennar í björgunarleiðangrinum.
„Mitt hlutverk sem flugstjóri er náttúrulega bara að sjá svolítið stóru myndina og stýra hífingunni. Vissulega voru þetta mjög krefjandi aðstæður og krakkarnir eiga hrós skilið fyrir sinn þátt í þessu.“
Hann segir ómögulegt að undirbúa sig að fullu fyrir þær aðstæður sem blöstu við áhöfninni á slysstað.
„Þetta eru bara aðstæður sem við getum engan veginn undirbúið okkur hundrað prósent fyrir.“
Áhöfnin hafði góðan tíma til að fara yfir fyrirhugaðar aðgerðir á leiðinni austur á Hornafjörð þar sem þyrlan tók eldsneyti.
„Við vorum öll mjög vel stemmd og á einu máli allan tímann.“
„Þetta eru alls konar pælingar sem við förum í gegnum saman sem áhöfn. Það komu allir með punkta og við metum og sammælumst um hvernig við ætlum að gera þetta. Það gekk bara verulega vel þarna í nótt.“
Gramur yfir stöðu þyrlumála
Spurður hvaða lærdóm megi draga af björgunaraðgerðunum segir Jens að önnur þyrla hefði skipt sköpum.
„Vissulega hefðu bara tvær vélar skipt sköpum. Það segir sig sjálft. Þá hefðum við farið beint á staðinn og stytt þennan tíma.“
Jens leynir ekki gremju sinni yfir þeirri stöðu sem áhöfnin var sett í.
„Í fyrsta lagi komum við náttúrulega ekki öll heil heim. En það er bara eins og það er. Og að þessar aðstæður séu svona. Við erum að fara á einni vél og áhöfnin númer tvö er látin dúsa inni á Egilsstöðum í von og ótta.“
Gleði að koma öllum heim
Spurður hvernig tilfinningin hafi verið þegar skipverjarnir voru hífðir um borð í þyrluna, einn af öðrum, segir Jens lítinn tíma hafa gefist til að hugsa um slíkt á meðan á aðgerðunum stóð.
„Á staðnum var svo sem ekkert tóm. Þetta gerist allt tiltölulega hratt og mikið um að vera, miklar upplýsingar sem við erum að reyna að vinna úr.“
Þegar síðasti skipverjinn var kominn um borð og björgunaraðgerðunum lauk tók við önnur tilfinning.
„Auðvitað var þetta bara gleði að ná að klára þetta, koma öllum heim,“ segir Jens.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗