Brast í grát þegar hann ræddi fíkn sína í svefnpillur - „Ég hélt að hann væri dáinn“
Darron Gibson, fyrrverandi miðjumaður Manchester United og Everton, hefur opnað sig um alvarlega fíkn í svefnlyf sem var nærri því búin að kosta hann lífið.
Gibson ræddi erfiðleikana í hlaðvarpsþættinum Howler hjá írska ríkisútvarpinu RTÉ ásamt eiginkonu sinni, Danielle.
Írinn glímdi við kvíða á knattspyrnuferlinum og byrjaði að taka svefnlyf eftir hnémeiðsli árið 2013. Fíknin ágerðist og á tímabili tók hann allt að fjórtán töflur á hverju kvöldi.
Árið 2021 fékk Gibson alvarlegt krampakast og óttaðist eiginkona hans að hann væri látinn.
„Þegar sjúkraflutningamennirnir komu var hann orðinn blár á vörunum. Ég hélt að hann væri dáinn. Ég hugsaði bara að hann þyrfti að minnsta kosti ekki að þjást lengur,“ sagði Danielle.
Gibson brast í grát þegar hann rifjaði upp atvikið. „Ef þetta hefði ekki gerst væri ég líklega ekki hér í dag,“ sagði hann.
Danielle tók undir það og sagðist telja að eiginmaður hennar hefði að öllum líkindum látist ef ekkert hefði breyst.
Gibson lenti ítrekað í vandræðum vegna fíknarinnar. Hann var dæmdur fyrir ölvunarakstur árið 2015 og þremur árum síðar ók hann á kyrrstæða bíla eftir að hafa tekið svefnlyf og drukkið vodka.
Sunderland rifti samningi hans í kjölfarið.
Gibson lék meðal annars með Manchester United, Everton og Sunderland en lagði skóna á hilluna árið 2021.
Hann hefur nú leitað sér hjálpar og segir líðan sína mun betri en á árum áður. Danielle gagnrýndi jafnframt skort á stuðningi við knattspyrnumenn sem glíma við fíkn og andlega erfiðleika.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗