Tíðinda að vænta af Sundabraut
Brú yfir Kleppsvík. Tilgátumynd af Sundabraut ef brúarlausnin verður fyrir valinu frekar en jarðgöng. Brúin mun liggja frá athafnasvæði Samskipa nálægt Holtagörðum og stystu leið í Gufunes. Tölvumynd/Efla
Hljótt hefur verið um Sundabrautarverkefnið á undanförnum mánuðum en á næstunni gæti dregið til tíðinda því von er á ákvörðun um það hvaða leið verður valin til að þvera Kleppsvík.
Reykjavíkurborg hefur verið að undirbúa tillögur um breytingu á aðalskipulagi vegna Sundabrautar. Má búast við að þær birtist undir lok ársins að því gefnu að samstaða náist milli ríkis og borgar varðandi leiðarvalið.
Þetta segir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar og formaður verkefnisstjórnar um undirbúning Sundabrautar, aðspurður um stöðu Sundabrautarverkefnisins.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗