Nýr íslenskur CS2-tölfræðivefur
Nýr íslenskur tölfræðivefur fyrir Counter-Strike er kominn í loftið á cs2.is. Þar má skoða úrslit íslenskra móta frá árinu 2023, fletta upp liðum og leikmönnum og bera saman frammistöðu þeirra.
Í frétt á eSports.is kemur fram að á vefnum séu skráðir 1.925 leikmenn og 470 lið. Tölfræðin nær til 107 móta og 4.115 leikja. Gögnin koma meðal annars úr mótum Rafíþróttasambands Íslands.
Hver leikmaður með sína síðu
Hver leikmaður á sína síðu þar sem meðal annars má sjá frammistöðueinkunn, kill/death ratio (K/D) og meðalskaða í hverri lotu (ADR). Einnig er hægt að skoða hvernig leikmanninum hefur gengið á einstökum kortum og bera tölur hans saman við tölur annarra leikmanna.
Á vefnum má einnig fletta upp innbyrðis viðureignum liða, sjá hvaða lið hafa unnið einstök mót og skoða met á borð við flestar fellingar á einu korti og lengstu sigurgöngu.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗