Árekstur vörubíls og fólksbíls: „Mjög alvarlegt“
Mjög alvarlegt slys varð á Suðurstrandarvegi fyrr í dag þegar vörubíll og fólksbíll lentu í árekstri. Veginum verður lokað fram eftir kvöldi.
„Þetta er mjög alvarlegt slys,“ segir Einar Sveinn Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grindavík, í samtali við mbl.is. Mikill viðbúnaður er á vettvangi og segir Einar að allt sé gert sem hægt er að gera.
Fjöldi viðbragðsaðila á vettvangi
Einar vill ekkert gefa upp um líðan þeirra sem slösuðust að svo stöddu. Hann getur ekki heldur staðfest hve margir voru í bílunum.
Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, segir að fjöldi viðbragðsaðila hafi farið á vettvang.
Þeir komu frá Brunavörnum Suðurnesja, Slökkviliði Grindavíkur og slökkviliðum í Hafnarfirði og á Selfossi. Sjúkrabílar fóru einnig frá sömu stöðum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/54/19/1541959.jpg)