„Bróðir minn var um borð í skipinu sem sökk“

Jökull ÞH.

Jökull ÞH. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

„Lífið er dýrmætt og svona atburðir minna okkur svo sannarlega á hversu mikilvægt það er að hugsa vel um fólkið okkar og njóta samverunnar með því.“

Þetta skrifar Lára Ósk Hlynsdóttir í færslu á Facebook í dag en bróðir hennar var um borð í Jökli ÞH sem sökk um 100 metra austur af landinu í gær.

„Við vitum aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér og það er aldrei sjálfgefið að fá sína nánustu heim í faðminn,“ skrifar hún í færslunni.

Óendanlega þakklát

„Bróðir minn var um borð í skipinu sem sökk,“ skrifar hún.

Hún segist óendanlega þakklát fyrir það að bróðir hennar hafi komist lífs af og vottar á sama tíma aðstandendum þeirra sem létu lífið sína innilegustu samúð.

„Það er erfitt að lýsa tilfinningunum sem fylgja svona atburði, en fyrst og fremst erum við þakklát fyrir að hann hafi komist heill heim.“

Þá þakkar hún öllum þeim sem komu að björguninni fyrir. „Það verður seint fullþakkað það starf og sú hjálp sem veitt var.“

„Hugur okkar er hjá þeim sem eiga um sárt að binda eftir þennan atburð. Við sendum þeim og fjölskyldum þeirra okkar hlýjustu hugsanir og innilegar samúðarkveðjur,“ skrifar hún að lokum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab