Fékk 35 leikja bann
Norska knattspyrnufélagið Viking hefur sett áhorfanda í 35 leikja bann og kært viðkomandi til lögreglu eftir niðrandi ummæli um trú og uppruna dómarans Rohit Saggi á heimaleik gegn KFUM fyrr í mánuðinum.
Stuðningsmenn sem voru nærri létu öryggisverði vita sem fjarlægðu áhorfandann.
„Sterkar tilfinningar eru hluti af knattspyrnu. Á sama tíma sýnum við ekkert umburðarlyndi gagnvart hvers kyns níði og áreitni,“ sagði Eirik Bjørnø, framkvæmdastjóri Viking, í yfirlýsingu frá félaginu.
Saggi heyrði ekki ummælin meðan á leiknum stóð. Viking baðst afsökunar á þessu og þakkaði stuðningsmönnunum sem tilkynntu atvikið. Samkvæmt félaginu hefur áhorfandinn einnig beðist innilega afsökunar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗