Ingvar Jónsson er látinn - Greindist með krabbamein í vor

Ingvar Jónsson, markvörður Víkings, er látinn eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Ingvar átti farsælan feril sem knattspyrnumaður en kveður þennan heim 37 ára gamall

Ingvar er fæddur árið 1989 og er uppalinn í Njarðvík þar sem hann hóf feril sinn. Hann gekk til liðs við Stjörnuna fyrir tímabilið 2011 og vakti fyrir alvöru athygli á sér sumarið 2014.

Stjörnumenn urðu þá Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í sögu félagsins án þess að tapa leik. Þá átti Ingvar stóran þátt í mögnuðu Evrópuævintýri Garðbæinga sem endaði með viðureign gegn ítalska stórveldinu Inter.

Getty Images

Ingvar hélt í atvinnumennsku að tímabilinu loknu og samdi við norska félagið Start. Hann lék einnig með Sandnes Ulf og Sandefjord í Noregi áður en hann gekk til liðs við danska félagið Viborg árið 2018.

Ingvar sneri heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið 2020 þegar hann samdi við Víking. Þar hefur hann verið í lykilhlutverki á einu allra glæsilegasta tímabili í sögu félagsins.

Víkingar urðu tvöfaldir meistarar árin 2021 og 2023, bikarmeistarar árið 2022 og Íslandsmeistarar árin 2025 og 2026. Ingvar hóf tímabilið í sumar með Víkingi en varð að hætta leik vegna krabbameins sem hann barðist við allt til síðasta dags.

Ingvar hlaut Gullhanskann árið 2023 og hefur ítrekað sýnt hversu mikilvægur hann er þegar mikið liggur við. Þá átti hann stóran þátt í sögulegum árangri Víkinga í Sambandsdeild Evrópu veturinn 2024-25 þegar liðið komst í útsláttarkeppni.

Ingvar hefur leikið átta A-landsleiki fyrir Íslands hönd og var í landsliðshópnum sem náði eftirminnilegum árangri á Evrópumótinu í Frakklandi árið 2016.

Í maí á þessu ári var greint frá því að Ingvar hefði greinst með illkynja krabbamein og þurft að gera hlé á knattspyrnuiðkun sinni.

Víkingarstóðu þétt við bakið á markverðinum og fjölskyldu hans og framlengdi félagið samning hans út árið 2027 í sumar.

Það var svo einstaklega falleg stund í Víkinni í október þegar Ingvar tók við Íslandsmeistaraskildinum fyrir hönd liðsfélaga sinna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab